ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

EKKI BARA VOND POLITÍK HELDUR EINNIG SPILLING

09:39 › 26. mars 2010

Jón Daníelsson hagfræðingur ræddi ástand mála í Silfri Egils síðastliðinn sunnudag. Hann fjallaði meðal annars um að Ísland nyti varla sannmælis á erlendum lánamörkuðum, lánstraustið væri lítið og svo framvegis.
Eitt þeirra atriða sem ráða lánshæfi og álagi er það sem hann kallaði „political risk“ eða pólitísk áhætta. Alþjóða lánamarkaðurinn tæki Íslandi illa vegna þess að á alþjóðlegum mörkuðum ríkti vantrú á að íslenskum stjórnvöldum takist að leysa úr málum.

Þorvaldur Gylfason er á svipuðum slóðum í helgarblaði DV og hittir naglann á höfuðið. Hann segir:

„Útlendingar gera sér yfirleitt grein fyrir, að Íslendingar búa nú ekki aðeins við efnahagskreppu, heldur einnig óstöðugt stjórnarfar. Það blasir við. Útlendingar leyfa Íslendingum yfirleitt að njóta sannmælis, hefur mér sýnst, eins og þegar norski ráðherrann sá ástæðu um daginn til að minna á, að Íslendingar beri sjálfir ábyrgð á þeim stjórnvöldum, sem þeir hafa kosið yfir sig og leiddu landið fram af bjargbrúninni. Enginn getur andmælt því. Útlendingar vita nú, að þrír áhrifamestu stjórnmálaflokkarnir þáðu stórfé af bönkunum fyrir hrun og leyfðu þeim líkt og í þakkarskyni að fara sínu fram, vaxa landinu yfir höfuð og keyra það í kaf. Útlendingar vita nú um spillinguna, sem hefur gegnsýrt stjórnmálalífið og viðskiptalífið.
„Ég get frætt lesendur DV á því, að Þjóðminjasafnið er nú vegna áskorana byrjað að safna skipulegum upplýsingum um spillinguna í landinu fyrr og nú, og það er gott. Útlendingar vissu ekki áður um spillinguna hér, þeir þurftu þess ekki, en nú vita þeir um vandann, því að þeir hafa nú neyðst til að setja sig inn í málið. Norðurlöndin hafa lagt fram mikið skattfé til að hjálpa Íslendingum út úr ógöngunum og þurfa því að hafa réttar upplýsingar um ástandið á Íslandi. Mikill fjöldi erlendra fórnarlamba bankanna, bæði lánardrottnar og sparifjáreigendur, krefjast þess af þarlendum stjórnvöldum, að þau heimti úrbætur af Íslendingum. Það myndu Íslendingar einnig gera, ef þeir stæðu í sömu sporum.“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.