ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

YFIRGENGILEGT FREKJUKAST

09:52 › 25. mars 2010

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, hneykslaðist á málflutningi og framgöngu sægreifanna í LÍÚ í stóra skötuselsmálinu á Rás 2 í morgun.

Hann kallaði þá frekjur.

Rifjast þá upp að Gunnlaugur Finnbogason grásleppukarl og útgerðarmaður á Ísafirði sagði í vefriti Skutuls í júní í fyrra að skötuselurinn væri orðinn martröð grásleppukarlsins:


Orðrétt: „Gunnlaugur segir að þegar kvóti var settur á skötusel, hafi hann aðeins veiðst sunnanlands og því hafi allur kvótinn endað þar, en smábátar og útgerðir á Vestfjörðum eigi engan kvóta í skötusel.  Því þurfi grásleppukarlar að kaupa eða leigja kvóta til að fá að landa skötusel, en nú sé engan kvóta að fá.  Smábátamenn verði því að henda skötuselnum, eigi þeir ekki að lenda í sektum, eða hætta veiðum.  Það sem ætti að vera búbót, er orðið að plágu.  „Ég treysti á að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra breyti lögum þannig að menn megi landa skötusel sem meðafla utan kvóta."“

Nú hafa stjórnvöld brugðist við þessum vanda Gunnlaugs og ætla að sjá til þess að hann gegi leigt kvóta til að mæta vandanum. Eitt tonn af skötusel getur hann leigt í eitt ár fyrir 120 þúsund krónur, beint frá fólkinu í landinu.

En þá bregður svo við að LÍÚ og nú einnig sú deild í LÍÚ sem kallast Samtök atvinnulífsins krefjast þess að þær útgerðir, sem fengu upprunalega kvótann, fái nýja kvótann endurgjaldslaust til þess að geta selt hann eða leigt mönnum eins og Finnboga og öðrum vestfirskum sjómönnum. Kvótahöfum verður sjálfsagt einnig lagið að verðleggja skötuselinn eins og þeim hentar.

Ég reikna með að Ragnar Árnason, varahagfræðingur LÍÚ, hafi fært fram góð rök fyrir því á fundi á Ísafirði í gærkvöldi, að Gunnlaugur eigi um aldur og ævi að leigja kvóta af „einkaeigendum“ hans.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?