ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

RÍKISENDURSKOÐANDI SVARAR

14:13 › 25. mars 2010

Fyrir fáeinum dögum beindi ég spurningu til Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda um framlög til aðildarfélaga Sjálfstæðisflokksins.

Sveinn hefur nú svarað spurningu minni skriflega (25.3.10) og birti ég svar hans hér með:

---

„Sæll Jóhann!


Sem kunnugt er gátu stjórnmálasamtök samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda  farið þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún birti upplýsingar um öll bein fjárframlög til þeirra og þau óbeinu fjárframlög sem voru 200 þús.kr. og hærri á tímabilinu 2002–2006. Um var að ræða framlög jafnt til landsflokkanna sem allra eininga er undir þá falla og tengjast rekstri og eignum þeirra. Þó var heimilt að undanskilja flokkseiningar ef tekjur þeirra voru undir 300 þús.kr. á ári.


Samkvæmt lögunum bar Ríkisendurskoðun að samræma upplýsingar sem miðlað var til hennar samkvæmt framangreindum lagafyrirmælum og birta niðurstöðurnar með samræmdum hætti fyrir árslok 2009. Upplýsingarnar skyldi birta með eftirgreindum hætti:


• Heildarfjárhæð árlegra framlaga samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum.


• Heildarfjárhæð árlegra framlaga frá einstaklingum samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum.


• Heildarfjárhæð árlegra framlaga frá lögaðilum samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum.


• Tilgreina átti sérstaklega þá aðila sem létu 500 þús.kr. eða meira af hendi rakna. Ef lögaðili krafðist trúnaðar um framlög sín til viðkomandi stjórnmálasamtaka bar engu að síður birta upplýsingar um fjárhæð framlagsins en ekki upplýsingar um heiti viðkomandi aðila. Væri styrkveitandi einstaklingur varð birting á nafni hans  ávallt að byggjast á samþykki hans.


Heildstæðar upplýsingar um framlög til stjórnmálasamtaka á tímabilinu 2002–2006 bárust aðeins frá Framsóknarflokknum, Reykjavíkurlistanum og Samfylkingunni. Með heildstæðum upplýsingum er hér átt við samræmdar upplýsingar um framlög til stjórnmálasamtakanna sjálfra sem og allra eininga sem undir þau falla (samstæðuuppgjör).  Jafnframt bárust upplýsingar um framlög til aðalskrifstofa Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs auk nokkurra eininga sem tilheyra síðarnefnda flokknum. Engar upplýsingar bárust frá Frjálslynda flokknum. 


Upplýsingar frá Sjálfstæðisflokknum og Vinstri hreyfingunni – grænu framboði voru ekki heildstæðar í fyrrgreindum skilningi og treysti Ríkisendurskoðun sér ekki til þess að samræma þær en birti þær í þeirri mynd sem þær bárust. Í yfirskrift upplýsinganna frá Sjálfstæðisflokksins kemur fram að eingöngu er um að ræða styrki til flokksskrifstofunnar á árunum 2002-2006. Samkvæmt þessu takmörkuðust upplýsingarnar við styrki sem flokkskrifstofan aflaði á umræddu tímabili. Ríkisendurskoðun fékk á hinn bóginn engar upplýsingar um fjárframlög til einstakra aðildarfélaga eða flokkseininga Sjálfstæðisflokksins. Rétt er að taka fram í þessu sambandi að lögin fólu ekki í sér að flokkunum bæri að upplýsa sérstaklega um framlög frá einingum sínum og aðdildarfélögum enda teljast þær hluti af flokkunum þegar kemur að reikningsskilum, sbr. til hiðsjónar 8. gr. tilvitnaðra laga. Þar sem upplýsingöflun og upplýsingagjöf samkvæmt framangreindu bráðabirgðaákvæði lauk um síðustu áramót bendum við þér á að beina fyrirspurnum um  fjárframlög til Sjálfstæðisflokksins nefndu tímabili til flokksins sjálfs.


kv.


Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi.“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?