Samtök atvinnulífsins, undir framkvæmdastjórn Vilhjálms Egilssonar, hafa sagt sig frá stöðugeikasáttmála ríkisstjórnarinnar og helstu hagsmunasamtaka í landinu.
Í stöðugleikasáttmálanum er aðallega að finna kröfur á hendur ríkisstjórninni og loforð hennar um framgang ýmissa mála sem geta orðið atvinnulífi til framdráttar og hraðað endurreisn.
Vilhjálmur hefur nú sagt sig frá þessum kröfum á hendur stjórnvöldum og ætlar að leggja þær fram í eigin nafni og SA.
Lítum nánar á. Í sáttmálanum stendur meðal annars eftirfarandi í næstsíðustu grein:
„13. Fyrirvari Samtaka atvinnulífsins vegna sjávarútvegsins
Samtök atvinnulífsins viðhalda þeim fyrirvara gagnvart framlengingu kjarasamninga að vinna á
vegum ríkisstjórnarinnar um endurskoðun fiskveiðistjórnunar verði í þeim sáttafarvegi sem lagt
var upp með við skipan nefndar til þess að vinna að því máli.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, upplýsti í dag að fyrirtækin í samtökum Vilhjálms séu þegar búin að velta vandamálum sínum og kostnaði yfir á heimilin og launafólk í formi 8 til 9 prósenta verðbólgu!
Þannig voru SA og Vilhjálmur löngu búinn að brjóta stöðugleikasáttmálann áður en hann kom fýldur fram á sjónarsviðið í gær og gaf sáttmálanum langt nef.
Samt hafði Vilhjálmur yfirumsjón með gerð endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokksins fyrir réttu ári síðan sem gekk aðallega út á að ná jafnvægi og stuðla að endurreisn.
Þegjandi hlustaði hann á Davíð Oddsson tæta hana í sig.
Þegjandi hlýðir hann nú á ofstækisraddirnar innan LÍÚ sem halda SA í herkví.
Vilhjálmur fylgdist með því eins og aðrir hvernig LÍÚ og Samtök fiskvinnslustöðva tóku upp herskáa stefnu gegn áformum stjórnvalda um innlausn kvótans. Vilhjálmur tók reyndar þátt í því á sínum tíma að heimila veðsetningu á óveiddum fiski í sjó.
Vilhjálmur Egilsson veit að herská stefna LÍÚ hrakti endurskoðun kvótakerfisins upp úr sáttafarveginum.
Það sem upp úr stendur er að ASÍ og aðrir sem aðild eiga að stöðugleikasáttmálanum hafa enga sérstaka friðarskyldu gagnvart Samtökum atvinnulífsins eftir að Vilhjálmur og LÍÚ sögðu sig frá honum.
Staðreynd er að fyrirtækin hafa velt kostnaði yfir á heimilin og einstaklinga með 8 til 9 prósenta verðbólgu á sama tíma og krónan styrkist lítið eitt.
Það er eins og SA og Vilhjálmur Egilsson megi ekki sjá drullupytt; ekið er umsvifalaust út í hann með LÍÚ-bílstjórana í aftursætinu.
Þjónkun SA við sérhagsmuni LÍÚ-greifana rauf friðinn á íslenska vinnumarkaðnum seint í mars 2010.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
