ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

GLERHÖRÐ HAGSMUNASTJÓRNMÁL

22:04 › 24. mars 2010

Heiftarleg átök geisa um landstjórnina þessa dagana. Barist er á mörgum vígstöðvum og um mörg mismunandi mál.
Í fyrsta lagi hefur verið tekist á um Icesave skuldbindingarnar í 10 mánuði.
Í öðru lagi er tekist á um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
Í þriðja lagi er tekist á um kvótakerfið.
Í fjórða lagi er tekist á um stefnu í stóriðju- og orkumálum.
Í fimmta lagi er tekist á um sjálft lýðræðið og umbætur í stjórnkerfinu.
Í sjötta lagi blossar senn upp ágreiningur um sársaukafullan niðurskurð á útgjöldum ríkissjóðs.
Í sjöunda lagi er tekist á um samvinnuna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um efnahagslega endurreisn.
Í áttunda lagi ríkir tortryggni og lítil sátt um aðferðir við skuldaafskriftir fyrirtækja og tilraunir „grunaðra“ til að komast á ný yfir atvinnutæki og eignir.
Í níunda lagi ríkir ágreiningur um sanngjörn og heppileg viðbrögð við stökkbreytingu sligandi húsnæðis- og bílalána heimilanna.
Í tíunda lagi ríkir verulegur ágreiningur um skattamál og fjármál ríkissjóðs.

Sundrandi og sameinandi mál
Mörg þessara mála sameina stjórnarflokkana en jafnmörg sundra þeim jafnharðan. Grunnt er á því góða milli stjórnarflokkanna varðandi EBS-málin, orku- og stóriðjumálin, samvinnuna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Icesavemálið, allt eftir því við hvaða arm VG rætt er við. Vera má að ágreiningur um niðurskurð ríkisútgjalda bætist við með vorinu.
Flest þessara mála sameina stjórnarandstæðinga, Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk sem þó hafa ekki þingstyrk til að koma sér að kjötkötlunum án undangenginna þingkosninga. Á samlyndinu eru þó undantekningar eins og afstaða flokkanna til samvinnunnar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ber vott um.
Eftirtektarvert er hversu andsnúin hagsmunasamtök og þrýstihópar eru ríkisstjórninni. Dæmi um hin fyrrnefndu eru hagsmunasamtök útgerðarmanna og atvinnurekenda sem hundsa nú endurskoðun kvótakerfisins og segja sig frá stöðugleikasáttmálanum. Dæmi um þrýstihóp er Indefence, sem fékk því framgengt að Icesavemálinu var vísað, gegn vilja ríkisstjórnarinnar, til þjóðarinnar.
Meira að segja hagsmunasamtök farmanna og sjómanna snúast gegn áformum stjórnarflokkanna í kvótamálunum.
Í raun og veru er ríkisstjórnin að uppskera eins og hún sáði til.
Tiltölulega vonlítið var frá upphafi, eins og listinn hér að framan sýnir, að jafnaðar- og vinstrimenn gætu haldið völdunum stundinni lengur gegn vel skipulögðum hagsmunum sem samofnir hafa verið Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum um áratuga skeið.
Sveinn Andri Sveinsson, lögfræðingur og sjáflstæðismaður, sagðist í Silfri Egils um helgina, sjá merki þess að Samfylkingin væri að gefast upp á slítandi ágreiningi við villta vinstrið í VG og hallaði sér senn til hægri.
Fullyrðing Sveins Andra er skynsamleg og nærtæk þegar öllu er á botninn hvolft.

Fer sem fer
Sögum fer af því að senn linni ófriði meðal stjórnarliða um Icesave. En vandræðaganginum lýkur ekki þar með. Jafnaðar- og vinstrimenn fengu í fyrsta skipti í 65 ára lýðveldissögu umboð kjósenda til þess að fara með landsstjórnina. Þeir virtust hafa viljann til góðra verka og sömdu stefnuyfirlýsingu. Yst til vinstri voru þó nægilega margir sem gátu ekki og vildu ekki skilja, að til þess að halda völdum urðu þeir að þreifa á afli þrautreyndra og vel skipulagðra pólitískra andstæðinga sinna. Þeir reyndu ekki að skilja þá þversögn, að til þess að halda völdum urðu þeir að tileinka sér skilvirkt skipulag andstæðinganna. Um sinn að minnsta kosti. Þessir vinstrimenn voru nægilega margir til þess að veikja þingmeirihlutann og ríkisstjórnina og efla kjark og óskammfeilni stjórnarandstöðunnar.
Nú láta hagsmunasamtök Sjálfstæðisflokksins kné fylgja kviði í baráttunni fyrir óbreyttu kvótakerfi. Aldrei skal það verða að þjóðin leysi aftur til sín allan gjafakvótann. Þau vængstífa endurskoðunarstarfið á vegum sjávarútvegsráðherra. Þau segja sig frá stöðugleikasáttmála og löghelga þar með ekki forræði og forgöngu ríkisstjórnar eða þingmeirihlutans.
Enginn hefur völd nema einhverjir vilji lúta valdinu.
Því fer sem fer.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?