Undarlega þegjandalegt er í kring um Icesave þessa dagana.
Bretar og Hollendingar fara sér engu óðslega.
Hagfræðingarnir segja, að úr þessu verði bara að leysa málið, sama hver lausnin nákvæmlega er.
Eins og allur vindur úr „við borgum ekki fólkinu“ eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Útlönd búin að gleyma Ólafi Ragnari forseta einu sinni enn.
Fólkið búið að gleyma niðurstöðunni og hvað hún átti að merkja sem skilaboð út í heim.
Nú taka bara embættismennirnir við einu sinni enn, láta eins og ekkert sé.
Ræða svolítið um innstæðutryggingakerfi og yfirþjóðlegar skuldbindingar.
Ræða svolítið um að Íslendingar eigi bágt og rétta þeim sama vaxtaafsláttinn og þeir gerðu í London og Haag.
Svo verður skrifað undir.
Og vinstristjórnin hverfur til hægriverka.
Að skera niður velferðarkerfið og ríkisútgjöldin.
Blogg
UNDARLEGA ÞEGJANDALEGT
20:23 › 23. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
