ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

FYRIRSPURN TIL RÍKISENDURSKOÐANDA

09:34 › 23. mars 2010

R. 23. mars 2010

Til: Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda
Frá. Jóhanni Haukssyni blaðamanni

Erindi: Framlög til aðildarfélaga í Sjálfstæðisflokknum árin 2002 til 2006.

Í lögum nr. 99 frá síðasta ári um framlög til stjórnmálaflokka og frambjóðenda árin 2002 til 2006 segir meðal annars:
„Ríkisendurskoðun skal að ósk stjórnmálasamtaka veita viðtöku og birta upplýsingar um öll bein fjárframlög til þeirra sem og önnur framlög sem metin eru að fjárhæð 200.000 kr. eða meira á árunum 2002 til 2006, að báðum árum meðtöldum, jafnt til landsflokkanna sem allra eininga sem undir þá falla eða tengjast rekstri og eignum flokksins, svo sem sérsambanda, kjördæmisráða, eignarhaldsfélaga og tengdra sjálfseignarstofnana. Þó er heimilt að undanskilja flokkseiningar ef tekjur þeirra eru undir 300.000 kr. á ári.“

Vakin er athygli á orðalaginu „ríkisendurskoðun skal að ósk ... veita viðtöku...“

Í ljósi þessa er spurt: Hefur ríkisendurskoðandi tekið við upplýsingum um fjárframlög frá neðangreindum aðildarfélögum eða flokkseiningum Sjálfstæðisflokksins að ósk þeirra sjálfra?


Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Félag sjálfstæðismanna í Vesturbæ og Miðbæ
Félag sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri
Félag sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi
Félag sjálfstæðismanna í Lauganes- og Túnahverfi
Félag sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi
Félag sjálfstæðismanna í Langholtshverfi
Félag sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi
Félag sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi
Félag sjálfstæðismanna í Árbæ, Selás og Ártúnsholti
Félag sjálfstæðismanna á Kjalarnesi
Félag sjálfstæðismanna í Grafarholti
Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi
Félag sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi
Félag sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi
Félag sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík
Málfundafélagið Óðinn
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík
Samband ungra sjálfstæðismanna
Samtök eldri sjálfstæðismanna
Landssamband sjálfstæðiskvenna
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisfélag A-Skaftafellssýslu
Félag ungra sjálfstæðismanna á Hornafirði
Fulltrúaráðið Árnessýslu
Sjálfstæðisfélag Hveragerðis
Sjálfstæðisfélagið Huginn
Sjálfstæðisfélagið Óðinn, Selfossi
Sjálfstæðisfélagið Trausti í Flóa
Sjálfstæðisfélagið Muninn
Sjálfstæðisfélagið Ægir
Sjálfstæðisfélag Eyrarbakka
Sjálfstæðisfélag Stokkseyrar
Sjálfstæðiskvenfélag Árnessýslu
Hersir, félag ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu
Sjálfstæðisfélagið Fróði, Hellu
Sjálfstæðisfélag Kári, Hvolsvelli
Fjölnir, félag ungra sjálfstæðismanna
Fulltrúaráð V-Skaftafellssýslu
Sjálfstæðisfélag V-Skaftafellssýslu
Fulltrúaráðið Vestmannaeyjum
Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja
Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna
Fulltrúaráð Grindavíkur
Fulltrúaráðið Gullbringusýslu
Sjálfstæðisfélag Grindavík
Sjálfstæðisfélag Sandgerðis
Sjálfstæðisfélagið Garður
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaga í Reykjanesbæ
Sjálfstæðisfélag Keflavíkur
FUS Heimir, Reykjanesbær
Sjálfstæðisfélagið Njarðvíkingur
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
FUS Loki, Garður,Sandgerði og Vogar
FUS Freyja, Grindavík
Sjálfstæðifélagið Þór, Akranesi
Sjálfstæðifélagið Egill, Borgarnesi
Sjálfstæðifélagið Forseti, Snæfellsbæ
Sjálfstæðifélagið Gjafi, Grundarfirði
Sjálfstæðifélagið Sif, Stykkishólmi
Sjálfstæðifélagið Fylkir, Ísafirði
Sjálfstæðifélagið Mímir, Norður-Ísafjarðarsýslu
Sjálfstæðifélagið Bersi, Vestur-Húnavatnssýslu
Sjálfstæðifélagið Jörundur, Jörundur, Austur-Húnavatnssýslu
Sjálfstæðifélagið Víkingur, Sauðárkróki
Sjálfstæðifélagið Vörður, Akureyri
Sjálfstæðifélagið Verðandi, Dalvík
Sjálfstæðifélagið Mjölnir, Húsavík
Sjálfstæðifélagið Lögurinn, Egilsstöðum
Sjálfstæðifélagið Óðinn, Seyðisfirði
Sjálfstæðifélagið Hávarr, Fjarðabyggð
Sjálfstæðifélagið Stefnir, Hafnarfirði
F.u.s. Bessastaðahreppi
Sjálfstæðifélagið  Huginn, Garðabæ
Sjálfstæðifélagið  Týr, Kópavogi
Sjálfstæðifélagið  Baldur, Seltjarnarnesi
Sjálfstæðifélagið  Viljinn, Mosfellsbæ
Kjördæmisráð Sjáfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Kjördæmisráð Sjáfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
Kjördæmisráð Sjáfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi
Kjördæmisráð Sjáfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
Kjördæmisráð Sjáfstæðisflokksins í Reykjavík

Hafi 70 ofangreindra félaga fengið 5 milljóna króna framlag samanlagt árin 2002 til 2006 nemur upphæðin samtals 350 milljónum króna.

Hafi 70 ofangreindra félaga fengið 10 milljóna króna framlag samanlagt árin 2002 til 2006 nemur upphæðin samtals 700 milljónum króna.

Berist svar frá embætti yðar verður það birt hér á þessum vettvangi.

Virðingarfyllst,
Jóhann Hauksson



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?