Lesandi bloggsíðu minnar vakti athygli mína á grein sem Tryggvi Þór Herbertsson fyrrverandi bankastjóri ritar í Moggann og hefur sjálfur eftirfarandi um Tryggva Þór að segja:
"Tryggvi Þór Herbertsson fyrrverandi bankastjóri Askar Capital sáluga skrifar opnupistil í Morgunblaðið í dag og gerir tilraun til að slá sig til riddara réttlætisins um leið og hann afhjúpar þekkingarskort sinn. Í pistlinum heldur Tryggvi því fram að ríkisstjórnin hafi í hyggju að taka það upp að afskrift skulda sé meðhöndluð sem skattskyldar tekjur. Maður hefði nú ætlað að hagfræðingur vissi að svo hefur verið áratugum saman og að það byggist á gildum rökum.
Láti til dæmis banki bankastjóra sínum í té bíl að láni og ákveði síðan að hann þurfi ekki að skila bílnum er það afskrift skuldar. Sama á við ef bankinn lánar honum fé til að kaupa bíl eða veitir honum kúlulán til að kaupa hlutafé og afskrifar svo lánin. Ætli mörgum þætti réttmætt að líta fram hjá því og skattleggja bara laun skrifstofumannsins sem látinn er ganga frá lánaskjölunum?
Staðreyndin er sú að í tillögum ríkisstjórnarinnar er ekki verið að búa til nýja skattlagningu eða nýjan skattstofn heldur er verið að leita leiða til að fella skattlagningu tekjur sem myndast við afskrift skulda niður í þeim tilvikum þar sem rök og sanngirni standa til. Í því efni er fyrst og fremst litið til afskrifta veðskulda vegna kaupa á íbúðarhúsnæði og venjulegra fjölskyldubifreiða. Ekki er talið tilefni til að hið sama gildi um lán til hlutabréfakaupa og
áhættufjárfestinga enda hafa þeir sem slík lán fengu margir hverjir nýtt hagnað af slíkum viðskiptum og safnað eignum þótt lánin kunni nú að vera í vanskilum.
Með vandlætingu sinni er Tryggvi ef til vill að reyna að breiða yfir vonbrigði sín yfir því að fyrrum eigendum bankanna, stjórnendurm og vildarvinum þeirra skuli ekki líka tryggð skattfrjáls afskrift brasklána. Hvers vegna skyldi pistilhöfundurinn Tryggvi titla sig prófessor við Háskóla Íslands, sem hann ekki er, en ekki sem fyrrverandi bankastjóri, sem hann er?"




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
