Því vanstilltara sem öfgahægrið og ystavinstrið verður í landinu, því meir vaxa líkurnar á að upp úr sjóði milli þessara hópa.
Á meðan þjappa menn sér saman á miðjunni og leita nýrra leiða til skynsamlegra lausna um sambúðina við aðrar þjóðir, nýtingu náttúruauðlinda og eignarhald á þeim, peningamálastefnu og nýjan gjaldmiðil, ríkisfjármál og rekstur velferðarkerfisins. Í þessum hópi er drjúgur hópur sjálfstæðismanna.
Morgunblaðið hefur tekið afstöðu gegn þessum meirihluta þjóðarinnar með gælum við öfgasinnaða og ómálefnalega trúboða. Í leiðara blaðsins um helgina er látið að því liggja að stjórnvöld séu í hatursherferð gegn atvinnuvegum þjóðarinnar með því að hneppa þá í skattaáþján.
Er þetta lið, sem talar svona, sama liðið og vill ekki taka erlend lán til neinna verka, lækka skatta og brytja velferðarkerfið í spað? Hvernig vill öfgahægrið brúa 50 milljarða gjá í ríkisrekstrinum? Prédikar það ekki sömu lausnir og repúblíkanar í Bandaríkjunum: Látum ríka fólkið vera, það mun snúa hjólum atvinnulífsins í gang og skaffa störf.
Fyrirgefið mér Davíð og Hannes: Það er búið að reyna þetta. Auðmenn Íslands fengu að valsa um eftirlitslausir með hörmulegum afleiðingum.
Dreginn er fram Hannes Hólmsteinn Gissurarson með Lafferkúrvuna sína og séreignarfanatíkerinn Ragnar Árnason sem um árabil var kostaður af sægreifum til fyrirlestrahalds um allan heim til að boða fagnaðarerindi þeirra um séreignarrétt á óveiddum fiski í sjó.
Þessir menn vilja nú slíta í sundur friðinn í landinu þegar stjórnvöld vilja láta reyna á fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða, að auðlindin sé sameign þjóðarinnar.
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins vitnar til nýrrar bókar áróðursmeistara HÍ Hannesar Hólmsteins. Þar er greinilega að finna gamlar lummur hans um að Ísland hafi siglt sinn eigin sjó,hvorki undir leiðsögn norræna velferðarlíkansins né undir merkjum ameríska draumsins og einkaframtaksins.
Samt lofaði þessi sami HHG “framfaratíð” leiðtoga lífs síns (DO) sem best heppnuðu frjálshyggjutilraun veraldar á ráðstefnum og í erlendum fjölmiðlum áður en allt hrundi.
Kenndi svo öðrum um þegar allt var hrunið.
Hvenær verður þessi Háskólatrúður sjálfum sér samkvæmur.
Þeir vitna hvor í hinn, Davíð og Hannes Hólmsteinn, þessa dagana. Sú var tíðin að Davíð hélt Hannesi til hlés til að skemma ekki fyrir Flokknum, til dæmis rétt fyrir kosningar.
Nú eru öll vopn notuð og gerast þeir fóstbræður nú háværir mjög.
Það er einkenni allra þrýstihópa og hagsmunasamtaka, að því minni sem áhrif þeirra og völd eru, því meiri er hávaðinn frá þeim í fjölmiðlum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
