ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

ÖGMUNDUR STYÐUR HÁDEGISMÓALÍNUNA

09:49 › 2. mars 2010

Eiga kjósendur að ganga út úr heimi röklegrar hugsunar og skynsemi og inn í Undraland Hádegismóa og Ögmundar og verða að athlægi heimsins fyrir heimatilbúna vitleysu um ávinning af heimskulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu í nútímasögunni?


---------
Ögmundur Jónasson, VG, hefur nú staðfest að hann styður málstað stjórnarandstöðunnar.

Ögmundur  hafði yfir eftirfarandi rökstuðning um Icesavemálið í á Morgunvaktinni á RÚV í morgun:

- Semjist við Hollendinga og Breta í vikunni er einboðið að þingið afnemi úrelt Icesavelögin frá 30. desember og þar með félli þjóðaratkvæðagreiðslan sjálfkrafa niður, ekkert væri til að kjósa um.

- Semjist ekki við Hollendinga og Breta fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna er ástæðulaust að tala hana niður því hún styrkir samningsstöðu þjóðarinnar gagnvart viðsemjendunum.


Þetta er rakið Hádegismóabull í Ögmundi. Ef hann hefði til dæmist heyrt svör Sigrúnar Davíðsdóttur um einmitt þetta á Rás 2 í gær hefði Ögmundur áttað sig á að Icesave skiptir engu máli í umræðunni í Bretlandi og Ísland ógnar engu innstæðukerfi kapítalismans.
Múgsefjun er meðal þeirra sem tekið hafa þátt í því að veita reiði þjóðarinnar í þjóðernisfarveg sem sér hættulega óvini allt í kring; í Hollandi, í Bretlandi, í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, í Brussel, á Norðurlöndunum...
Ögmundur tekur þátt í þessari vitleysu og hefur nú staðfest að í landinu ríkir minnihlutastjórn. Ögmundur hefur tekið sér stöðu við hliðina á skoðanabróður sínum í Hádegismóum, með Sigmundi Davíð vini sínum og forsetanum sem væntanlega er á taugum vegna yfirvofandi niðurlægingar þjóðaratkvæðagreiðslu um ekki neitt.


Það er fráleit túlkun og afglöp að telja þjóðinni trú um að öll Evrópa mæni taugastrekkt til Íslands af ótta við að kjósendur hér segi nei á kjörseðli þar sem aðeins er val um einn reit þar sem stendur (   )   NEI!  Aðrir kostir eru úreltir, óraunhæfir og ógnun við mannlega rökhugsun.
Þegar erlenda pressan áttar sig á þessu dregur hún okkur sundur og saman í háði og spotti.
Hvernig hefur þessi langsótta vitleysa náð tökum á Ögmundi?
Heldur hann að ríkisstjórnir í Evrópu séu á taugum yfir því að Íslendingar segi nei í þjóðaratkvæðagreiðslu? Að sú niðurstaða berist kjósendum um alla Evrópu og þar með fari heimsbyltingin af stað gegn kapítalismanum.

Þetta er ævintýralegt bull rétt eins og lagastaglið um Icesave í Sigmundi Davíð og Mogganum. Ríkisstjórnir heims meðhöndla stöðugleika fjármálakerfisins á pólitískum grundvelli þegar á reynir og enginn Moggi eða Ögmundur fá þar neinu um þokað.


Fyrirgefðu Ögmundur. Viltu ekki bara byrja á því að taka til hér heima áður en þú bjargar veröldinni?
Eiga kjósendur að ganga út úr heimi röklegrar hugsunar og skynsemi og inn í Undraland Hádegismóa og Ögmundar og verða að athlægi heimsins fyrir heimatilbúna vitleysu um ávinning af heimskulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu í nútímasögunni?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.