Mig langar ögn til að biðja Pál Vilhjálmsson sem bloggar eftirfarandi að hafa í huga nokkur atriði og halda sig við staðreyndir, ekki síst af því hann titlar sig stundum blaðamann.
En hann skrifar:
"Keyra útrásarauðmenn í þrot og hefja skynsamlega uppbyggingu atvinnulífsins sem jafnframt yrði siðferðislega verjandi. Lilja Mósesdóttir er einn fárra þingmann sem hafa tilfinningu fyrir þjóðfélagsstraumum.
Útrásarpakkið á ekki að fá neina hlutdeild í endurreisn landsins, það er forsenda fyrir því að almenningur leggist á sveif með stjórnvöldum.
Skynsamleg uppbygging atvinnulífsins með ábyrgð, ráðdeild og virðingu fyrir náttúruverðmætum að leiðarljósi er leiðin sem verður að fara.
Við setjum Lilju Mósesdóttur í embætti viðskiptaráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Líklega er best að hún sjái jafnframt um iðnaðarráðuneytið."
Þrjár athugasemdir læt ég duga:
1) Í 10 grein sáttmála íslenska ríkisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá 15. nóvember 2008 stendur eftirfarandi (letter of intent):
"Previous senior managers and major shareholders in intervened banks who are found to have mismanaged the banks should not assume similar roles for at least three years."
Sem útleggst: Helstu stjórnendur og eigendur bankanna sem til meðferðar eru og gerst hafa sekir um að hafa orðið valdir að falli þeirra eiga ekki að fá að gegna slíkum ábyrgðarstöðum á ný í að minnsta kosti þrjú ár."
Þetta er nú æði stór hópur fólks ef grannt er skoðað og þeirra á meðal svokallaðir útrásarvíkingar.
2) Lilja Mósesdóttir hefur gagnrýnt heiftarlega aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að endurreisninni. Hún er meðal þeirra sem þykist sjá samsæri AGS, Hollendinga, Breta og ESB gegn Íslendingum.
3) Ómögulegt er að mynda þingmeirihluta Sjálfstæðismanna og VG nema hugsanlega að undangengnum þingkosningum. Sjálfstæðismenn hafa 16 þingmenn og VG 14. Samanlagt 30 þingmenn duga ekki og því yrði að reyna að ná slíkum meirihluta í kosningum.
Einnig vill svo til að Ögmundur Jónasson er í hópi þeirra sem síst af öllu vill leiða hrunflokkinn aftur til valda. Þetta gæti Páll gengið úr skugga um með því að spyrja Ögmund sjálfan. Þykir mér reyndar afar líklegt að Lilja sé sömu skoðunar, svo hreinlynd sem hún er um þau efni sem Páll gerir að umtalsefni.
Blogg
OFURLÍTIL ATHUGASEMD VIÐ PÁL VILHJÁLMSSON
17:24 › 2. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
