Kjósendur lýsa óánægju sinni með kreppu og versnandi kjör með því að setja á HOLD! í fylgiskönnun Fréttablaðsins í dag.
40 prósent þeirra taka ekki afstöðu.
Sjallarnir gefa upp afstöðu sína í ríkara mæli en aðir. Af sjálfu leiðir að hefðbundnir kjósendur Sjálfstæðisflokksins, sem óánægðir eru með kreppukjör, hægagang og aðgerðarleysi stjórnvalda, kasta út atkvæði sínu á sinn stjórnarandstöðuflokk, Sjálfstæðisflokkinn. Það er sjálfgefið og sjálfsagt. Eitthvað flýtur á milli flokka en könnunin greinir ekki þann þátt málsins.
Greinum þetta snöggvast út frá heildinni.
Sjálfstæðisflokkur: 24 prósent
Samfylkingin: 14 prósent
VG: 12,4 prósent
Framsóknarflokkur: 8 prósent
Borgarahreyfingin: 1,3 prósent
Hreyfingin: 0,4 prósent
Tóku ekki afstöðu: 40 prósent
Samtals: 100 prósent
Lang stærsti stjórnmálaflokkurinn í landinu er sem sagt flokkur þeirra sem ekki taka afstöðu, HOLD!-flokkurinn. Hann er með 40 prósenta fylgi.
Er líklegt að í þessum 40 prósenta flokki leynist margir kjósendur Sjálfstæðisflokksins?
Kalt mat: Nei!
Sama gæti átt við um Framsóknarflokkinn sem missir einn þingmann samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Það er herfileg útreið þegar hinn stóri stjórnarandstöðuflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, nær sinni gömlu kjörstöðu.
Hverjir leynast þá í HOLD-flokknum?
Gefum okkur að 65 prósent þeirra séu óánægðir stjórnarliðar.
Þá eru niðurstöðurnar eftirfarandi:
Sjálfstæðisflokkurinn: 33 prósent
Samfylkingin: 27 prósent
VG: 25 prósent
Framsóknarflokkur: 13 prósent
Hreyfing/ 2 prósent
Borgarahreyfing
Samtals: 100 prósent
Þetta er sennileg niðurstaða en engan veginn pottþétt. Spyrjið bara fræðingana ef þið trúið mér ekki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
