Íslensk stjórnvöld draga á langinn að fylgja úrskurði mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í máli tveggja sjómanna.
......
Reyndur og lærður maður sem ég þekki sendi mér eftirfarandi línur:
“Sá þessa fyrirsögn:
Stendur hrunskýrslan ekki undir væntingum?
Stjórnsýsluúttekt en ekki neinn Stóridómur
Þetta hefur legið fyrir. Ef menn skoða íslensku stjórnsýslulögin og bera saman við t.d. sænsku og finnsku lögin sést hvernig hin dauða hönd íhaldsins vinnur. Allar tennur eru dregnar úr lögunum líkt og gerist með mannréttindasáttmála sem Ísland skrifar undir. Með þessari nálgun eru valdhafar firrtir ábyrgð en um leið er hægt að segja að Ísland sé með. Ef umboðsmenn hefðu haft ákæruvald og firningartíminn hefði verið fimm ár (Finnland) í stað eins hefði umboð skýrsluhöfunda orðið annað. Einnig er álitamál hvort Páll og Tryggvi hefðu getað komið að henni vegna þess að þeir hafa frekar dregið lappirnar í mannréttindamálum en hitt. Þess vegna gegna þeir þessum embættum sem þeir gera í dag.”
Hér er átt við Pál Hreinsson og Tryggva Gunnarsson sem báðir sitja í rannsóknarnefnd Alþingis, en hún hefur nú frestað þriðja sinni birtingu sannleiksskýrslu Alþingis.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
