ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

ÞRENGINGAR FJÖLMIÐLANNA

23:49 › 18. mars 2010

Það sem hér fer á eftir er eiginlega nánari útfærsla á því sem Eiríkur Jónsson segir um deyjandi sjónvarpsfréttir.

Þegar ég var dagskrárstjóri hjá RÚV ár árunum 2002 til 2005 blöstu við mér sláandi tölur um það hversu dýrar fréttir eru í framleiðslu.

Ef ég man rétt voru hlutföllin eitthvað á þessa leið í mínútum talið:

Tónlistarþáttur á Rás 2 300 krónur hver mínúta.
Morgunvakt í útvarpi 1.700 krónur hver mínúta.
Fréttir í útvarpi    ca. 3.000 krónur hver mínúta
Fréttir í sjónvarpi   17.000 krónur hver mínúta.

Með öðrum orðum: Fréttir eru dýrar. Það er dýrt að afla þeirra, vinna úr efninu og koma því til skila.
Breytt tækni gæti hafa dregið nokkuð úr kostnaði fyrir útvarp og sjónvarp. En það er afar erfitt að draga mjög úr kostnaði til dæmis við gerð sjónvarpsfrétta án þess að það komi niður á gæðum.

Vel má vera að þarna sé vandi fjölmiðla í hnotskurn. Æ fleiri sækja fréttir eftir þörfum á vefinn án þess að greiða nokkuð fyrir þær. Þróunin er alls staðar á þessa lund. Meira að segja sjónvarpið á í vök að verjast gagnvart netinu.

Ég held að dagblöð á okkar 320 þúsund manna málsvæði sé nú að upplifa sína verstu tíma frá upphafi. Þriðjungur blaðamanna er atvinnulaus. Auglýsendur greiða 30 til 40 prósentum lægra fyrir auglýsingar í dagblöðum á sama tíma og pappírs- og prentkostnaður er hærri en nokkru sinni vegna ónýtrar krónu.
Eina tekjulind Fréttablaðsins eru auglýsingar. Lifir það af þessar hremmingar?
Morgunblaðið er fast í gildru dýrra nýbygginga og rangra ákvarðana. Hversu lengi heldur það út?
DV er til sölu, sennilega vegna þess að það reis úr öskustó.En varla stendur það betur að vígi en aðrir prentmiðlar varðandi til dæmis auglýsingatekjurnar.

Í raun og veru má halda því fram að ríkisstjórnin taki þátt í því að drepa dagblöðin með því að leyfa Ríkisútvarpinu að vera á auglýsingarmarkaði og hirða á annan milljarð króna ár hvert af öðrum miðlum.
Án þess að ég hafi nokkrar meininar þar um vil ég benda á að víða á Norðurlöndum njóta dagblöð styrkja. Það er talið þjóna upplýsingu og lýðræði.

Nokkrir fréttamiðlar á vefnum nærast bókstaflega á dýrum fréttum annarra miðla. Þeir ná jafnvel í auglýsingatekjur beinlínis vegna þess að þeir fiska í sífellu upp fréttir annarra og leggja út slóðir inn á þær.
Hvað ætli verði um þessa miðla þegar raunverulegu fréttamiðlarnir eru farnir á hausinn vegna dýrrar fréttaöflunar? 




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.