Um það bil svona standa Icesave samningamálin:
Stjórnarandstaðan viðurkennir nú það sem legið hefur ljóst fyrir í 7 mánuði að Ísland tók lán hjá Hollendingum og Bretum þegar þeir greiddu út innstæður landa sinna í Landsbankanum.
Stjórnarandstaðan viðurkennir að semja beri um endurgreiðslu þessara lána.
Stjórnarandstaðan hefur líka gert sér grein fyrir því að lengra verði ekki gengið í samningum um afslætti án þess að Bretar og Hollendingar fari að borga með sér.
En forystumenn stjórnarandstöðunnar hafa stigið í og úr, flutt sig úr einu víginu í annað.
Þegar framangreindur veruleiki blasir við þeim leggja þeir lítið annað til málanna en að samningurinn, sem gera á, megi ekki heita lánasamningur. Tala óljóst og þokukennt um að skera verði upp form samninganna, sem engu breytir í krónum og aurum. Hafa svo engin svör á reiðum höndum þegar gengið er á þá.
Þeir hafa með öðrum orðum enga döngun í sér til þess að viðurkenna villu síns vegar.
Þeir þurfa nú að bjarga andlitinu, fá réttlætingu fyrir töfunum, einskonar “Facesave”.
Þetta er öðrum þræði spurning um hverjum heiðurinn af samningum verði eignaður.
Ég veit fyrir víst að menn eins og Ömundur Jónasson eru hættir að skilja ósamkvæmni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar.
Þeir vilja ekki viðurkenna að Icesavesamningurinn er og verður samningur um endurgreiðslu lána og er því lánasamningur. Berja höfðinu við látlaust við stein.
Allir hugsandi menn vita að á endanum verður hægt að áætla með bærilegri nákvæmni ávinning á móti skaða vegna tafa á Icesavesamningum mánuðum saman.
Íslenska stjórnmálastéttin veit öll að þessu verður að linna.
Það má ekki kosta hvað sem er að skera Sigmund Davíð og Bjarna úr snörunni.
Ég er tilbúinn að þakka þeim í hástert ef þeir skrifa hratt og örugglega undir samning sem í raun liggur þegar á borðinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
