ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

SIGMUNDUR DAVÍÐ ÞEGIR ENN...

12:13 › 17. mars 2010

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er þeirrar gerðar í samskiptum og samvinnu að þegar hann hefur náð því að fá fólk upp á sína þúfu flytur hann sig um eina. Og svo koll af kolli.


Nú er svo komið fyrir Icesaveviðræðum að hann og skoðanabræður hans innan nefndarinnar vita að ekki verður lengra komist. Hann setur samt fram óljósar og ruglinslegar hugmyndir um form samningsins. Þessi maður sem fór á endanum að misnota Indefencesamtökin sjálfum sér til framdráttar í pólitík. Icesave verður að breytast í "Facesave" fyrir hann.


Skítt með þjóðina, hún má tapa 250 milljónum króna á dag vegna tafa á Icesavesamningum eins og allir viti bornir menn í kring um þennan dularfulla unga mann vita nú orðið.


Ég tók eftir því að viðskiptafélagi Sigmundar Davíðs, Indefencemaðurinn Magnús Þór Skúlason, var tekinn tali í Danmarks Radio fyrir skemmstu og rasskelltur þar fyrir að gera Indefence að tæki stjórnarandstöðunnar til að ná völdum aftur á Íslandi frekar en að berjast fyrst og fremst fyrir bættum Icesavesamningum.


Magnús Þór var þá nýkominn frá Hollandi ásamt fleirum Indefencemönnum þar sem þeir höfðu fengið áheyrn nokkurra ráðamanna vegna Icesave.


Ég spyr:


Hver borgar ferðalög Magnúsar Þórs og félaga?


Magnús, sem var sérlegur skósveinn Sigmundar Davíðs í bankaráði Seðlabankans, vék sem kunnugt er úr ráðinu eftir ásakanir um að hafa greitt  fyrir aflandsviðskiptum með gjaldeyri og unnið  gegn gjaldeyrishöftunum.


Hann gæti hafa gert það í tengslum við fyrirtæki sem hann á og heitir NoNo ehf. eins og ég hef áður minnst á.


Ég vil freista þess að spyrja Sigmund Davíð aftur af þessu tilefni, því engin svör hafa borist:

Átti hann hlut í fyrirtækinu NoNo ehf. með Magnúsi Árna einhvern tíma eða vann hann fyrir þetta fyrirtæki með Magnúsi á umræddu tímabili?

Svar Simundar birti ég vitanlega hér á þessum vettvangi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.