Davíð Oddsson tætti í sig endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokksins í lok mars á síðasta ári. Hann sá eftir trjánum sem farið höfðu í að prenta skýrsluna.
Skýrslan var samin undir verkstjórn Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.
Samtök atvinnulífsins biðja nú um að Icesave samningum verði hraðað, enda tefji stríðið við nágrannaþjóðirnar uppbygginguna hér.
Í einum kafla meira en ársgamallar endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokksins stendur orðrétt:
"Hik Sjálfstæðisflokksins fram að falli bankanna við að ræða Evrópumál, peningastefnu, myntina, ríkisfjármál og störf Alþingis hefur haft skaðleg áhrif. Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt að koma á sterkari umræðuhefð í grasrótinni. Flokkurinn verður að hlutsta á baklandið, og má ekki veigra sér við að ræða eldfim mál áður en í óefni er komið."
Von að Davíð hafi verið reiður.
Nú er hann reiður og bitur.
Enn eru órædd og óupperð innri vandamál Sjálfstæðisflokksins.
Ætli einhver sjái eftir skógunum sem fara í að prenta Moggann?
Blogg
ELDFIMUM MÁLUM STUNGIÐ UNDIR STÓL
14:55 › 17. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
