Ný skýrsla sem Anton Valukas lögmaður hjá Jenner&Block vann fyrir bandarískan dómstól.um fall Lehman Brothers bankann er bomba.
Hún leiðir í ljós að bankinn misnotaði endurhverf verðbréfaviðskipti herfilega.
Hún leiðir í ljós að bankinn ofmat eignir sínar.
Valukas setur stórt spurningamerki við áritun endurskoðenda á tvö síðustu uppgjör bankans.
Á daginn kom að markaðurinn trúði þeim ekki og margir tóku stöðu gegn bankanum áður en yfir lauk.
Markaðurinn hefur alltaf rétt fyrir sér. Kaupi maður í vænlegu fyrirtæki en hlutabréfin falla í verði engu að síður á markaði, þá er ekkert annað að gera en að selja.Ef allt er með felldu deilir enginn við markaðinn.
Sett hefur verið spurningarmerki við eignamat íslensku bankanna sem féllu.
Sett hefur verið spurningarmerki við ársreikninga þeirra og áritun endurskoðenda PWC og KPMG.
Enda gerði sérstakur saksóknari húsleit hjá þeim báðum með liðsinni erlendra sérfræðinga.
Þeir eru enn að störfum og eiga eftir að skila niðurstöðum.
Niðurstöður þeirra verður engu minna hneyksli en úttekt Valukas á Lehman Brothers.
Blogg
MEÐVIRKIR ENDURSKOÐENDUR?
23:16 › 16. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
