ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

DAVÍÐ BEYGÐI ÞORGERÐI KATRÍNU

11:42 › 15. mars 2010

Ég sé að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrrverandi menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins var eitthvað að bera af sér hún hafi boðið Þorsteini Pálssyni, ritstjóra og ráðherra með meiru, stöðu útvarpsstjóra eða jafnvel lofað honum stöðunni 2005. Davíð hafi hins vegar tekið af henni ráðin.
 
Eyjan hefur þetta yfir á eftirfarandi hátt og vitnar til orða hennar í þættinum Sprengisandi:

„Í þættinum var haft eftir ónefndum þingmanni Sjálfstæðisflokksins, að Þorgerður Katrín hafi lofað Þorsteini útvarpsstjórastólnum, en Davíð Oddsson hafi komið í veg fyrir það. Enn hafi ríkt erjur á milli Davíðs og Þorsteins og Davíð hafi einfaldlega sagt Þorgerði að ekki kæmi til greina að Þorsteinn yrði útvarpsstjóri.
“Nei, þetta er ekki rétt,” sagði Þorgerður Katrín aðspurð um þetta atriði. “Það má vel vera að ýmsir hafi verið slegnir leiftursnöggt í höfuðið á þessum tíma, en það á ekki við í þessu tilviki,” sagði hún og vísaði þar til þess Davíð hafi sem formaður Sjálfstæðisflokksins oft tekið ráðin af sínum flokksmönnum, slegið þá leiftursnöggt í höfuðið, einsog það var stundum kallað.“

Ég vil kurteislega benda Þorgerði Katrínu á eftirfarandi:

Í fyrsta tölublaði tímaritsins Ísafoldar, sem kom út í nóvember árið 2006 er sagt í nokkrum smáatriðum frá æfingum Þorgerðar Katrínar og Davíðs með útvarpsstjórastöðuna. Þar segir meðal annars orðrétt:

„Heimildir eru fyrir því að á síðustu mánuðum sínum á valdastóli síðastliðið vor hafi  Davíð Oddsson hlutast til um að ráða Pál Magnússon í stöðu útvarpsstjóra.
Málið var á hendi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðhera sem skipaði Pál í embættið í lok júlí í fyrra (2005).
Þegar umsóknarfrestur rann út 21. Júlí 2005 höfðu 23 sótt um stöðuna. Nokkrum vikum fyrr hafði Þorgerður Katrín boðið Þorsteini Pálssyni, þáverandi sendiherra í Danmörku, stöðuna.
Yfir kvöldverðarborði í Kaupmannahöfn lagði Þorgerður að Þorsteini að sækja um stöðu útvarpsstjóra. Þorsteinn spurði þá Þorgerði hvort hún réði því ein hver ráðinn yrði. Þegar menntamálaráðherra kvað svo vera lýsti Þorsteinn efasemdum um að skynsamlegt væri, bæð fyrir hann sjálfan og Þorgerði, að hann sækti um stöðuna.
Þrátt fyrir þetta mun Þorgerður ekki hafa gefið Þorstein alveg upp á bátinn og tók hún málið upp við ahnn síðar. (...) Atburðarásin bendir til þess að efasemdir Þorsteins Pálssonar um að Þorgerður Katrín menntamálaráðherra réði því ein hver ráðinn yrði útvarpsstjóri hafi verið á rökum reistar. Á endanum réði flokksformaðurinn ferðinni.“

Ég hef aldrei heyrt að Þorgerður Katrín hafi mótmælt þessari frásögn. Enda er það tilgangslaust. Ég skrifaði þetta sjálfur í Ísafold og upplýsi hér með að efnið styðst meðal annars við samtal mitt við Þorstein Pálsson sjálfan.

Ónafngreindi þingmaðurinn í Sjálfstæðisflokknum hlýtur að hafa lesið um þetta allt í Ísafold á sínum tíma.

Svona er hægt að enduruppgötva heiminn.

Alltaf sem nýr.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.