Mikið þykir mér vænt um hversu dugleg þau eru á AMX vefnum á ystahægrinu að lesa pistla mína.
Þau lesa þá langt aftur í tímann og komast að þeirri skemmtilegu niðurstöðu að ég hafi nú sótt um starf upplýsingafulltrúa hjá fjármálaráðuneytinu eftir lengsta umsóknarferli sögunnar.
Þau lesa að ég hafi mært Steingrím J. fjármálaráðherra lengi og dyggilega í þessum pistlum, sem flestir hafa verið ritaðir til að benda ysta vinstrinu í landinu á að reyna að halda sönsum og vera þolinmótt. Því sundrungarsaga vinstrimanna í landinu væri saga 50 ára valdstjórnar Sjálfstæðisflokksins á 65 ára lýðveldistíma.
Þessi valdstjórn Sjálfstæðismanna í landinu endaði með algeru fjármálahruni.
En svona í leiðinni. Ég sótti um starf þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum fyrir nokkrum vikum ásamt einum 70 öðrum umsækjendum og enn annað starf tengt samvinnu Norðurlanda um norðurhjarann nokkru fyrr minnir mig.
Ég bíð eftir úttekt AMX á skrifum mínum sem tengjast þeim umsóknum.
Annars hélt ég að AMX myndi fagna hástöfum ef ég hætti að skrifa.
Ég endurtek. Mér þykir mjög vænt um þennan mikla áhuga sem mér er sýndur á AMX og hefur þessi áhugi orðið mér hvatning til þess að halda áfram skrifum í þessa veru. Hver veit nema hvatningin dugi til þess að ég haldi áfram í blaðmennskunni.
Blogg
HLÝJAR KVEÐJUR TIL AMX
15:32 › 15. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
