Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra skrifar oft af viti um stjórnmál og efnahagslíf. Flokkstengslin segja að vísu oft til sín.
Niðurstaða hans í grein í Fréttablaðinu dag er að sáttin innan VG og óbreytt stjórnarmynstur sé “keypt mjög dýru verði á mælikvarða almannahagsmuna”.
Hann heldur áfram:
“Að þessu virtu er ljóst að vilji forystumanna stjórnarflokkanna til samstöðu lýtur ekki að lausn á vanda samfélagsins. Hann snýr einvörðungu að því að finna hjáleið um innri vanda VG. Ákall um samstöðu á þessum forsendum er meir í ætt við málfundaæfingu en alvöru stjórnmál.”
Síðan bætir Þorsteinn við að flest bendi til að núverandi ríkisstjórn muni sitja þangað til Sjálfstæðisflokkurinn taki af skarið gegn “fátæktarstefnu” VG í peningamálum.
“Mannabreytingar í ríkistjórn eru sjónhverfingar en ekki lausn á þeirri pólitísku kreppu sem landið er í,” segir Þorsteinn að endingu.
Árið 1987 var Þorsteinn formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann neyddi Albert heitinn Guðmundsson, flokksbróður sinn, til að segja af sér ráðherradómi vegna skattalagabrota. Síðar sama ár klofnaði Sjálfstæðisflokkurinn og Albert kom sjálfur 7 mönnum á þing undir merkjum Borgaraflokksins. Skellurinn sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í þessum sömu kosningum var sá mesti sem flokkurinn hafði fengið á lýðveldistímanum eða þar til hann hrundi í þingkosningunum 2009.
Þorsteinn, svo málefnalegur og reyndur sem hann er, veit vel að undir gríðarlegum þrýstingi, ekki síst frá Sjálfstæðisflokknum, þarf sterk bein til þess að takast á við það hrun sem flokkur Þorsteins undirbjó í næði með Framsóknarflokknum í heil tólf ár fram að hruni.
Þorsteinn veit líka hversu dýrkeypt það getur verið að kljúfa flokka. Ég hef fulla trú á að nú sé farið af stað ferli innan VG sem leitt getur til sátta á grundvelli raunsæis. Fari svo hefur forystumönnum VG tekist það sem Þorsteini mistókst á sínum tíma.
Ég hef að vísu ennþá nokkrar áhyggjur af ýmsu í fari VG. En ég held að Þorsteinn ætti að spara sér yfirlýsingar um vilja sjáflstæðismanna til endurbóta á peningastefnu landsmanna og vandlætingarorð vegna sjávarútvegsstefnu VG.
Heldur Þorsteinn að Sjálfstæðisflokkurinn sé líklegri en VG til þess að taka aðildarumsókn að ESB til enda?
Heldur Þorsteinn að Sjálfstæðisflokkurinn sé líklegri til að kasta krónunni en VG?
Heldur Þorsteinn að Sjálfstæðisflokkurinn sé líklegri en VG til þess að finna réttan meðalveg milli náttúruverndar og orkunýtingar?
Sannast sagna héld ég að VG sé á miklu vænlegri þroskabraut en Sjálfstæðisflokkurinn þessa dagana.
Flokkur Þorsteins stjórnast einkum af bitrum og þjóðrembdum afturhaldssegg á ritstjórastóli sem virðist algerlega ómeðvitaður um það sem þjóðin öll veit; að sá maður stýrði þjóðfélaginu með festu og yfirgangi að feigðarósi.
Þorsteinn getur um sinn bókað að Sjálfstæðisflokkurinn gegnir því hlutverki helst þessa dagana að þjappa saman Samfylkingunni og VG gegn þeim ósköpum að fá þann forstokkaða hrunflokk aftur til valda.
Blogg
VG TEKST ÞAÐ SEM ÞORSTEINI MISTÓKST
15:29 › 13. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
