Ætli þau í stjórnmálafræðinni viti af þessari skilgreiningu á pólitík?
---
Lítill drengur kemur til föður síns og spyr, "Pabbi, hvað er pólitík?" Pabbinn svarar, "Ég skal reyna að útskýra það: Ég er fyrirvinnan á heimilinu, svo við skulum kalla mig Stjórnkerfið. Mamma þín sér um peningamálin, svo við skulum kalla hana Stjórnvöld. Við erum hér til að uppfylla þarfir þínar, svo við getum kallað... þig......... Fólkið í landinu. Barnfóstran, við lítum á hana sem Hina vinnandi stétt. og litli bróðir þinn, við getum kallað hann Framtíðina. Hugsaðu um þetta og sjáðu hvort að þetta útskýrir stjórnmál fyrir þér."
Svo litli drengurinn fer í rúmið og hugsar um það sem pabbi hafði sagt honum. Seinna um nóttina heyrir hann litla bróður sinn gráta svo hann fer upp að athuga með hann. Hann kemst að því að hann er búinn að kúka í bleyjuna sína. Hann fer inn í hjónaherbergið og finnur þar mömmu sína sofandi, en engann pabba. Hann lítur þá inn til barnfóstrunnar. Þar eru dyrnar læstar svo hann kíkir á skráargatið og sér þar pabba sinn að hamast á barnfóstrunni. Hann gefst upp og fer aftur í rúmið.
Næsta morgun segir strákur við pabba sinn: "Pabbi ég held að ég skilji út á hvað stjórnmál ganga!"
Pabbinn svarar, "Nú? Leyfðu mér að heyra hvernig þú skilur þau."
Og sá stutti svarar, "Nú, sko. Á meðan Stjórnkerfið hamast á Hinni vinnandi stétt, eru Stjórnvöld sofandi, Fólkið í landinu er hundsað og Framtíðin er í djúpum skít."
Blogg
ÍSLAND: SKILGREINING Á PÓLITÍK :)
12:12 › 13. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
