Fólk með öll skilningarvit í lagi ætti að fylgjast vel með orðræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugsonar formanns Framsókarflokksins.
Hann ritar frekar einkennilega grein í Fréttablaðið í dag um Icesave, sakar stjórnarliða um óhróður gegn sér (Steingrímur J. nefndi fyrir skemmstu að einn í samningaliðinu vildi ekki semja og sagði svo að hann ætti við Sigmund Davíð þegar gengið var á hann síðar.).
Í annarri hverri setningu hvetur hann til samstöðu.
En samstaðan á að vera um hans vilja.
Hvað vill Sigmundur Davíð?
Hann vill dómstólaleiðina, stríð við Evrópu og svarar ekki þegar hann er spurður um 20.887 evru lágmarksskuldbindinguna.
Eða stígur í og úr.
Í umræddri grein segir Sigmundur Davíð einnig:
„Fáeinir blaðamenn, sem lýst hafa sig eindregna stuðningsmenn ríkisstjórnarmeirihlutans í Icesave-málinu, virðast líta á það sem hlutverk sitt að hafa áhrif á atburðarásina fremur en að segja frá henni. Síðast rakst ég á klausu í dagblaði sem var uppspuni frá rótum. Klausan átti að lýsa ummælum formanns samninganefndarinnar um nálgunina í viðræðunum og mig. Þar var ekki eitt satt orð og raunar um fullkomin öfugmæli að ræða. Eigi að takast að leysa Icesave-málið sómasamlega verða allir stjórnmálaflokkar að vinna saman að lausn þess á rökréttan hátt með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi í stað þess að láta hagsmuni flokka eða óvild í garð annarra ráða för.“
Er kjarkur hans ekki nægilega mikill til að nefna DV?
Fjallað var ítarlega um Icesavemálið á Rás 1 í Danska útvarpinu í gær, Dammarks Radio. Þar er rætt við Magnús Árna Skúlason hagfræðing og einn af fulltrúum Indefence. Magnús er sá sami og settist í bankaráð Seðlabankans fyrir hönd Framsóknarflokksins og Sigmundar Davíðs.
Magnús vék sem kunnugt er úr bankaráði Seðlabankans eftir ásakanir um að hafa greitt fyrir aflandsviðskiptum með gjaldeyri og unnið gegn gjaldeyrishöftunum.
Hann gæti hafa gert það í tengslum við fyrirtæki sem hann á og heitir NoNo ehf.
Nú vil ég vita hvort Sigmundur Davíð hafi átt hlut í þessu fyrirtæki með Magnúsi Árna einhvern tíma eða unnið fyrir þetta fyrirtæki með Magnúsi.
Fyrirspurnir um þetta berast ótt og títt til okkar hér á DV.
Ég bendi Sigmundi Davíð að senda mér svar ef hann kýs: Netfangið er johannh@dv.is.
Blogg
SIGMUNDUR DAVÍÐ OG MAGNÚS ÁRNI
16:28 › 12. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
