ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

DANMARKS RADIO LÚSKRAR Á INDEFENCE

12:00 › 12. mars 2010

Fjallað var ítarlega um Icesavemálið á Rás 1 í Danska útvarpinu í gær, Dammarks Radio.  Þar er rætt við Magnús Árna Skúlason hagfræðing og einn af fulltrúum Indefence. Magnús er sá sami og settist í bankaráð Seðlabankans fyrir hönd Framsóknarflokksins og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns. Magnús vék sem kunnugt er úr bankaráðinu úr bankaráði Seðlabankans eftir ásakanir um að hafa greitt  fyrir aflandsviðskiptum með gjaldeyri og unnið  gegn gjaldeyrishöftunum.

Á þessu var tekið í danska útvarpinu og spurningamerki sett við pólitískt hlutleysi Indefencehópsins.
Í raun er gefið til kynna að Indefence sé liður í baráttu um völdin yfir landsstjórninni á Íslandi.
Rætt er við Lars Houbakke Sörensen lektor við Árósaháskóla, en hann jafnar ástandinu hér við það sem uppi var á teningnum á Grænlandi fyrir skemmstu.

Ekki verður sagt að íslenskir fjölmiðlar fái háa einkunn í úttekt danska útvarpsins sem áhugasamir geta hlustað á hér.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.