Seigfljótandi og hægdrepandi pattstaða og aðgerðarleysi þings og ríkisstjórnar má líkja við stöðutöku gegn þjóðinni.
Guðmundur Ólafsson hagfræðingur telur að forseti Íslands sé haldinn óþoli vegna þessa og bíði tilbúinn með utanþingsstjórn ef réttar aðstæður skapast.
Þarna geta kjörnir fulltrúar fólksins aðeins sjálfum sér um kennt og engum öðrum. Á þeim bylur krafan alla daga um að þeir sýni ábyrgð.
En ekkert gerist.
Er það persónuleg óvild einhvers staðar innan 34 þingmanna meirihluta sem heldur þjóðinni í gíslingu?
Er það sú óvild og ábyrgðarleysi sem gerir þennan 34 manna meirihluta að raunverulegum minnihluta í gíslingu stjórnarandstöðunnar?
Er ekki rétt að fá ágreiningsmálin upp á yfirborðið þannig að þjóðin geti gripið til sinna ráða áður en verra hlýst af? Spyrjum ASÍ. Spyrjum SA. Spyrjum hvern sem er. Allir nema þingmennirnir okkar 63 vita hvað þarf að gera.
Hvernig væri til dæmis að byrja á því að reka nokkra úr þingflokki Vinstrigrænna og leita stuðnings annars staðar innan stjórnarandstöðunnar? Einhverra sem vilja sýna ábyrgð við endureisn fyrirtækja og heimila.
Ef þetta er ekki kostur í stöðunni: Hvernig væri þá að sýna þjóðinni með einhverum áþreifanlegum hætti að í landinu sé starfhæfur meirihluti á þingi og skilvirk ríkisstjórn?
Blogg
STÖÐUTAKA ÞINGSINS GEGN ÞJÓÐINNI
12:28 › 11. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





