Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður, er stundum óborganlega fyndinn. Það á við um þetta sem birtist á vefmiðli Smugunnar:
„John Edgar Hoover hét yfirmaður Alríkislögreglunnar, F.B.I, í Bandaríkjunum. Hann gegndi því starfi frá stofnun hennar 1935 þar til hann sálaðist árið 1972 og stóð mörgum stjórnmálamönnum stuggur af honum og óttuðust að hann kynni að gera einhvern óskunda. Frægt er að sá kaldhæðni forseti Lyndon B. Johnson ákvað að hreyfa ekki við Hoover í forstjóraembættinu og sagði að sennilega væri illskárra að hafa hann inni í tjaldinu sprænandi út en fyrir utan tjaldið sprænandi inn.
Nú gengur það fjöllunum hærra að Jóhanna og Steingrímur hafi fengið svipaða niðurstöðu úr sínu reikningsdæmi og Lyndon B. Johnson á sínum tíma og ætli á nýjan leik að skjóta ráðherrastóli undir botninn á Ögmundi Jónassyni eftir vætusama fjarveru hans úr ríkisstjórnartjaldinu.
Þá er vonandi að Ögmundur verði jafnsnyrtilegur og kassavaninn og Hoover og muni eftir því að spræna út í stað þess að freistast til að létta á sér inni í tjaldinu.“
Í þingflokki Þráins þarf aldrei að gera neinar málamiðlanir og engin kaup kaups. Þar ríkir ævinlega eindrægnin og samstaðan sem óskandi væri að næði til allra þingflokka.





