Í landinu ríkir minnihlutastjórn Samfylkingar og Steingríms J. og stuðningsmanna formannsins í VG.
Stjórnin getur ekki komið málum í gegn þingið. Hún getur ekki afnumið úrelt Icesavelögin frá áramótunum. Hún getur ekki frestað þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi laugardag.
Það er vegna þess að hluti VG þingmanna hefur ákveðið að um Icesave skuli ríkja breið þingleg samstaða.
Sé það Sigmundi Davíð og Bjarna Ben. þóknanlegt að halda fáránlega og úrelta þjóðaratkvæðagreiðslu næstkomandi laugardag þykir hluta þingmanna VG einboðið að fylgja þeim trúarbrögðum.
Gegn þingmeirihluta sínum.
Ábyrgt fólk í forystu VG er að missa móðinn. Það veit að ekki er hægt að bjóða þjóðinni lengur upp á hættulega stjórnmálakreppu í landinu.
Forystumenn í VG vita að mikið er í húfi og vígstaða þeirra verri en Samfylkingarinnar.
Þau vita að ef upp úr slitnar gæti VG lent utan stjórnar. Næstu árin. Næstu kjörtímabilin.
Hvað vilja þau gera til þess að bjarga ríkisstjórninni?
Staða Samfylkingarinnar er þægilegri þótt við blasi átök um forystu í krataflokki landsins.
Hún getur myndað meirihlutastjórn með Sjálfstæðisflokknum. Látið Sjálfstæðisflokkinn skrifa undir að fylgja umsóknaraðildinni að ESB til enda og kvitta undir Icesave í hvelli. Og leyft þeim að fá eitthvað í staðinn.
Þvílík örlög: Hrunflokkurinn til valda.
Nokkrir liðsmenn VG hafa haft samband við mig og spurt hvers vegna ég skelli skuldinni á á “órólegu deildina” í VG.
Hvað mun standa á blöðum sögunnar þegar til dæmis samstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins tekur við?
Mun kannski standa: Mönnum er enn þann dag í dag hulin ráðgáta hvers vegna fyrsta meirihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG á lýðveldistímanum féll.
Vita ekki allir hver skýringin er?





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
