Ég horfði á viðtal í Kastljósi í kvöld við Harald Benediktsson formann Bændasamtakanna. Hann talaði um íslenskan landbúnað og rökin gegn aðild að Evrópusambandinu, en andstaða við aðild er yfirlýst stefna íslenskra bænda.
Um bændur, eins og aðra, mætti hafa þetta sanna lögmál: Þegar hópur öðlast forréttindi af einhverju tagi lætur hann þessi sömu forréttindi aldrei af hendi átakalaust.
Íslenskir bændur njóta nefnilega mikilla styrkja úr vösum skattgreiðenda og markaðsverndar.
En ég ætla ekki að fara í einhverjar skotgrafir hér gagnvart íslenskum bændum sem ég ber virðingu fyrir.
Ég vil hins vegar benda á þessa fréttaskýringu og viðtal sem ég tók eitt sinn við sérfræðing hjá sænsku bændasamtökunum, en eins og menn vita gengu Svíar í ESB árið 1995.
Ég hvet menn til að lesa pistilinn, hann er afar upplýsandi.
Blogg
BJÓÐA ÍSLENSKA BÆNDUR VELKOMNA Í ESB
22:03 › 1. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
