9. febrúar 2010
GLÁMSKYGGNIR VINSTRIMENN
Jóhann Hauksson
Það mun taka þá stundarfjórðung. Svolitlar breytingar sem engu skipta.
Þessir flokkar hafa nú tekið sér heilt ár í að halda þjóðinni í gíslingu með aðstoð andófsdeildar VG og forseta Íslands.
Hver mánuður í kyrrstöðu kostar 75 milljarða króna.
Seint verður hægt að semja um svo góð kjör á Icesave að það vegi upp skaða þjóðarinnar.
Þess vegna er Sigmundur Davíð InDefence og Bjarni Benediktsson í klípu nú og þurfa forystu stjórnarflokkana til þess að skera sig niður úr snörunni.
Ráðherrar í Haag reyndu að koma vitinu fyrir þá.
Nú koma sérfræðingar frá Bandaríkjunum og Kanada til þess að segja þeim um að bil sömu hlutina; að litlu sé hægt að breyta og að það borgi sig að ganga frá málinu strax.
Það þarf hins vegar að bera niðurstöðuna þannig á borð fyrir alþjóð að þeir Bjarni og Sigmundur fái að halda andlitinu.
Og forsetinn.
Og Ögmundur.
Og Lilja.
Hér er komið að kjarna málsins.
Heimsbyggðin veit að ríkisstjórn Íslands hefur hvorki þrek né pólitískan styrk til þess að halda stjórnarandstöðunni í skefjum. Stjórnarandstöðu, sem berst gegn breytingum á kvótakerfinu, gegn aðild að ESB, gegn Icesave og raunverulega breyttu eignarhaldi í atvinnulífinu (flestir gerendurnir kjósa Flokkinn).
Þess vegna er einhvers konar sátt gerð að skilyrði fyrir breytingum á Icesave af hálfu viðsemjenda í Hollandi og Bretlandi auk Norðurlanda og ESB sem kynnu að vilja hjálpa til.
Krabbamein ríkisstjórnarinnar er klofningurinn í VG sem fer enn í nýjar hæðir eftir val á efstu mönnum framboðslista VG í Reykjavík um helgina.
Undir þennan klofning kynda VG-menn sjálfir. Á fjósbitanum fitnar Sjálfstæðisflokkurinn sem stýrir framvindunni örugglega.
Sjálfstæðismenn sjá klofningnum fyrir eldsmat; Fyrir þeim eru VG-menn nytsamir sakleysingjar á leið Sjálfstæðisflokksins aftur til valda.
Í mínum augum eru þessir vinstrimenn glámskyggnir heimskingjar. Þeir munu sanna það fyrir kjósendum einu sinni enn á 66 ára sögu lýðveldisins að þeir geta ekki stjórnað landinu og munu aldrei öðlast þroska til þess líkt og systurflokkar þeirra, til dæmis á Norðurlöndum.

















