ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

RÍKISSTJÓRNIN LOFUÐ ÚR ÓVÆNTRI ÁTT

15:16 › 8. febrúar 2010

Viðskiptaráð Íslands verður seint ásakað um vinstri stefnu eða stuðning við núverandi ríkisstjórn. Til skammst tíma barðist það fyrir takmarkalitlu markaðsfrelsi og einkavæðingu og var í miðju útrásarinnar með umsvifamönnum og forseta Íslands. Þess utan hefur Viðskiptaráð verið eins konar útibú Sjálfstæðisflokksins í viðskiptalífinu og tengiliður.
Viðskiptaráð hefur nú sent félagsmönnum sínum skýrslu um stöðu efnahagsmála í janúar 2010.  Þetta eru einskonar punktar og greinilega ætlaðir útlendingum sem kunna að vera í snertingu við fyrirtæki hér á landi enda skýrslan skrifuð á ensku.
Skýrslan er sannast sagna eins og lofsöngur um árangur ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms J.

Um þetta skulu tekin nokkur dæmi:
1) Viðskiptajöfnuður var hagstæður á árinu 2009 um 72 milljarða.
2) Verðbólga er komin úr 18,6 prósent í 6,6 prósent og stefnir í 2,5 prósent í lok ársins.
3) Erlendar skuldir ríkisins verða 60 prósent af landsframleiðslu í lok ársins, miklu lægri en menn þorðu að vona.
4) Fjárlagahalli lækkar hratt; var 218 milljarðar króna árið 2008 en verður 99 milljarðar í lok þessa árs.
5) Bankarnir hafa verið endurfjármagnaðir og standa á eigin fótum.
6) Stýrivextir eru komnir á skömmum tíma úr 12 prósentum í 9,5 prósent.
7) Atvinnuleysi er 8 prósent. (Það er þó innan við helmingur þess sem það er í Bandaríkjunum og á Spáni.)
8) Ísland hefur sótt um aðild að ESB og fær stöðu fullgilds umsækjanda í vor.
9) Dregið hefur verið úr gjaldeyrishöftum.
10) Stöðugleikasáttmáli hefur verið gerður milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.
11) Icesaveábyrgðir vegna lágmarkstrygginga verða áfram fyrir hendi hvernig sem málið fer í þjóðaratkvæðagreiðslu.
12) Skattar hafa verið hækkaðir til þess að mæta fjárlagahallanum.


Þessum atriðum vill Viðskiptaráð halda að útlendingum í gegn um félagsmenn sína.
En vill það ekki birta þessa skýrslu sína einnig á íslensku?
Er hún kannski ekki til brúks hér heima vegna þess að hún fer gegn pólitískum hagsmunum Sjálfstæðisflokksins?
Ríkisstjórnin, sem fær þessa einkunn hjá Viðskiptaráði ,vinnur nú að því að skera Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson úr  Icesavesnörunni sem þeir komu sér hjálparlaust í.
Þetta ætlar hún að gera þótt Bjarni og Sigmundur Davíð hafi sent íslenskum skattgreiðendum 25 milljóna króna reikning fyrir áróðursstríðið sem þeir fengu bresku lögmannsstofuna Mishcon de Reya til að  taka þátt í fyrir áramót.

Viðskiptaráð hlýtur nú að þýða sem snöggvast skýrsluna sína og birta hana á vef sínum þannig að allir kjósendur geti séð lofgjörð ráðsins til ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar.
Lof úr þessari átt sætir nefnilega tíðindum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.