ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

HÁMARK ÓSVÍFNINNAR

11:06 › 8. febrúar 2010

Stundum er sagt að hægt sé að fá lögfræðinga og jafnvel hagfræðinga til að segja hvað sem er gegn gjaldi.

Ekki ætla ég að leggja dóm á það.

Það er hins vegar nánast hámark ósvífninnar að miðlungi hátt skrifuð  lögmannsstofa í Bretlandi sé gerð að moldviðrisumræðu fyrir kjósendur í boði Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um og fyrir jól og áramót.

Ég er að tala um lögmannsstofuna Mishcon de Reya.

Bjarni og Sigmundur Davíð lögðu allt kapp á að fá álit í bak og fyrir um Icesave fyrir jól og áramót. Heimtuðu Mishcon de Reya. Þyrluðu upp miklu fárviðri sem endaði með blysför til Bessastaða á vegum kampavínsklúbbs miðaldra karla úr Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum.
Eins og DV greinir frá í dag hefur þessi lögfræðistofa sent fátækri þjóð 25 milljóna króna reikning í boði Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben. Þar af á góðvinur Sigurðar Kára Kristjánssonar,  aðstoðarmanns Bjarna, að fá 10 milljónir króna.
Ég er að tala um Gunnalaug Erlendsson lögfræðing, fyrrverandi starfsmann Björgólfs Thors og flokksbróður þeirra Bjarna og Sigurðar Kára.  Sá vinnur greinilega fyrir Mishcon de Reya.
Ofan í kaupið er Jón Daníelsson hagfræðingur og ráðgjafi Sigmundar Davíðs fenginn til að rukka Alþingi um þessar 25 milljónir króna. Hann viðurkennir í DV að hafa hringt í Alþingi til að rukka.

Hagfræðikennari við London School of Economics??!! ??   Hvað er í gangi?

Er ekki hámark ósvífninnar að láta Steingrím J.  og þjóðina borga Icesaveáróður Bjarna, Sigmundar Davíðs og InDefence gegn ríkisstjórninni ?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.