Nú bregður svo við að þýsk stjórnvöld, með Angelu Merkel kanslara í broddi fylkingar, lýsa áhuga á að kaupa stolin gögn af tölvusérfræðingi með lista yfir 1.500 Þjóðverja sem eiga leynireikninga í svissneskum bönkum. Stjórnvöld vilja vitanlega skattleggja ríka Þjóðverja sem skjóta fé undan skatti með þessum hætti.
Tölvumaðurinn vill fá litla 4 milljarða króna fyrir listann.
Svissnesk stjórnvöld eru brúnaþung og ósamvinnuþýð og fjármálaráðherrann svissneski segist ekki vilja veita aðstoð í máli sem byggist á stolnum upplýsingum.
Svipað mál kom upp þegar þýsk stjórnvöld keyptu upplýsingar um viðskiptavini banka í fríríkinu Lichtenstein í sama tilgangi og vildu með því koma lögum yfir auðmenn.
Held jafnvel að skattayfirvöld hér á landi hafi fengið aðgang að Lichtensteinlistanum á sínum tíma til þess að ganga úr skugga um hvort íslenskir auðmenn væru á honum.
Hér á landi ættu menn að hafa þetta í huga þegar jagast er dögum saman í ungum pilti sem ku hafa reynt að koma mikilvægum en stolnum upplýsingum í verð með því að bjóða þær fjölmiðlum.
Fyrirmynd hans gæti verið Angela Merkel.
Blogg
FYRIRMYND UM STOLNAR UPPLÝSINGAR
11:07 › 3. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
