ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

NYTSAMUR SAKLEYSINGI EÐA LYGARI?

19:20 › 3. febrúar 2010

Bíðum við:


Ef Björgvin G. Sigurðsson þáverandi bankamálaráðherra og Jónas Fr. Jónsson forstjóri FME lugu engu um stöðu Landsbankans í eyru Hollendinga fyrir bankahrun, þá hljóta þeir að hafa sagt satt.


Nema þeir hafi trúað þeim upplýsingum sem Landsbankinn og aðrir bankar réttu þeim um stöðu þeirra, eigið fé og lausafjárstöðu.


Ef þeir trúðu þeim upplýsingum voru þeir auðtrúa nytsamir sakleysingjar sem vísa nú ábyrgð yfir til þeirra sem létu þeim í té slíkar upplýsingar.


Hvort er betra að vera lygari eða auðtrúa kjáni?


Hvernig er hægt að bera þetta á borð fyrir þjóðina? Meira að segja Baldur Guðlaugsson þá ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði 29.júlí þetta örlagaríka sumar 2008 að ef upplýsingar, sem starfshópur um fjármálastöðugleika hafði í höndum um stöðu bankanna, yrði á almanna vitorði þá yrði það banabiti íslensku bankanna.


Ætlar Björgvin G. að viðurkenna einfeldningshátt eða hitt að vera lygari?


Hvort finnst honum betra?

Já vel að merkja. Því sagði hann af sér ef hann hafði sem bankamálaráðherra hreina samvisku?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?