ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

ÞÁ FYRST SVÍKJA ÞAU KJÓSENDUR

23:03 › 28. febrúar 2010

Heyrði einhvers staðar að harðlínudeildin í VG væri óróleg og æst af því að hún vildi síst af öllu svíkja kjósendur sína.

Kannski var þetta Guðfríður Lilja í vikulokaþætti RÚV sem tók svo til orða.
Má einu gilda.

Í þessu felst yfirlýsing um að "rólega" deildin í VG hafi svikið kjósendur sína.

Við órólegu deildina í VG er bara þetta að segja: Þá fyrst svíkur hún kjósendur sína þegar hún kastar frá sér valdinu til að breyta samfélaginu og færir Sjálfstæðisflokknum völdin á ný.

Pólitísku kreppuna í landinu má rekja til órólegu deildarinnar í VG. Flokkurinn gat ekki axlað ábyrgðina á landsstjórninni. Hann bognaði. Samt er ábyrgasti og reyndasti stjórnmálaforinginn í landinu innan vébanda VG.

Hlýtur að vera mjög óróleg deild úr því Steingrímur réði ekki við hana.

Þetta er allt sagt í þátíð því þetta er búið spil.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.