ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

NÝ RÍKISSTJÓRN Í KORTUNUM?

16:14 › 27. febrúar 2010


Það er sorglegt til þess að hugsa að tækifæri Vinstrigrænna til þess að mola undan valdakerfi Sjálfstæðisflokksins í samvinnu við jafnaðarmenn er að renna þeim úr greipum.
VG er í þann veginn að missa tækifæri lífsins til þess að móta samfélagið eftir sínu höfði í samvinnu við jafnaðarmenn.


Vegna vanþroska, óþolinmæði og innra sundurlyndis.


Sú mynd sem dregin er upp í Morgunblaðinu í dag um djúpstæðan klofning innan VG er rétt.Þetta eru að vísu ekki nýjar fréttir, en þessi klofningur er mesti dragbítur núverandi ríkisstjórnar og hefur verið frá byrjun.


Sannleikurinn er sá að ríkisstjórnin hefur ekki lengur meirihluta á þingi.


Landinu er nú stjórnað af minnihlutastjórn. Meirihlutinn samanstendur af Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum, forseta Íslands, Indefence og flokksbrotinu úr VG, Ögmundararminum eða hvað menn vilja kalla þann arm.


Meirihlutinn er á bandi Sigmundar Davíðs í Icesavedeilunni: “Við borgum ekki – We will see you in Court.” Ég fer nærri um, að innan þingflokks Framsóknarflokksins eru þingmenn sem vilja ekki og ætla ekkert að semja við Hollendinga og Breta og telja öllu til fórnandi. Þökk sé þessum einkennilega nýja formanni flokksins, sem meira að segja sjálfstæðismenn treysta ekki lengur. En þar eru líka ábyrgari stjórnmálamenn sem láta lítið fyrir sér fara.
 
Vonir eru því nær engar um að þessari ríkisstjórn takist að leiða Icesavemálið til lykta.
 
Ögmundararmurinn fer auk þess með vopnabraki gegn aðildarumsókninni að ESB og hegðar sér jafnvel með dólgslegri hætti en Árni Johnsen eins og fram kom á þingi í vikunni. Þó hefur Brussel ekki gert neitt annað en að samþykkja aðildarumsóknina og bent þjóðinni á – til allrar hamingju – að hún þurfi að taka sig á í spillingarmálum, t.d. varðandi skipan dómara.


Ögmundararmunrinn mun aldrei geta farið í gegn um 50 milljarða niðurskurðarskafl í velferðarkerfinu á næsta ári.


Ögmundararmurinn er að springa vegna áforma um virkjanir og frekari stóriðju.


Til eru þeir innan VG sem hatast meira við Samfylkinguna en hrunflokkinn sjálfan, Sjálfstæðisflokkinn.


Sú staða er því að koma upp, enn eina ferðina, að landinu verður ekki stjórnað án þátttöku Sjálfstæðisflokksins. Sundurlyndi vanþroska vinstrimanna rekur þjóðina upp í fang Sjálfstæðisflokksins enn á ný.
 
Órólega deildin í VG er of vanþroskuð til þess að sjá hversu miklir langhlauparar menn verða að vera til að uppræta valdakerfi Sjálfstæðisflokksins. Hún fellur fyrir Icesavesmjörklípunni fyrst og leggst svo í skotgrafirnar gegn aðildarumsókninni í þágu Sjálfstæðisflokksins. Órólega deildin er pirruð og farin á taugum. Kannski átti hún aldrei neitt erindi í pólitík.


Þessi órólega deild VG virðist ekki vita, að allt er þetta í þann veginn að eyðileggja stjórnarsamstarfið og hrekja Samfylkinguna upp í fang hrunflokksins, Sjálfstæðisflokksins. Framsóknarflokkurinn kemur hér hvergi við sögu enda nýtur Sigmundur Davíð ekki trausts innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins þegar hér er komið sögu.


Þessi órólega deild innan VG  má vita eftirfarandi:
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn er kominn aftur í ríkisstjórn samþykkir hann:


- Icesave samning á kortéri
- Stóriðjuáform og virkjanir í þágu atvinnuuppbyggingar
- Aðildarumsóknarferli ESB til enda.
- Einhverjar breytingar á kvótakerfinu

Þetta er ískaldur veruleikinn sem blasir við úttauguðum órólega arminum innan VG.


Allt er þetta afar sorglegt og ber vott um pólitískan vanþroska. Í röðum VG er fólk sem virðist  engann vilja hafa til valdsins og kann því best að vera í stjórnarandstöðu.


En hvaða pólitíska sýn er það?


Hvenær kemur sá tími að ystavinstrið tekur sig taki og tekur ábyrgð á þjóðfélagsþróuninni þegar það hefur tækifæri til?
Af hverju vill þessi armur ekki læra af formanni sínum, mesta langhlaupara íslenskra stjórnmála um þessar mundir?


Hættan er sú að vinstrigrænir fái engin tækifæri næstu 20 árin til að móta íslenska samfélagið nái þeir ekki pólitískum þroska alveg á næstunni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.