Sævar Tjörvason lagði eftirfarandi til málanna eftir að hafa lesið grein um Icesave frá Tékklandi í bloggi mínu. Þetta er með því betra sem ég hef séð lengi - Takk Sævar:
"Tölvu-völvan mín er með gríðarlega öflugan örgjörva og styðst ekki aðeins við stjörnumerki og stöðu himintungla heldur einnig alla mannkynssöguna og spár fjármálastofnana um allan heim. Þegar ég óskaði eftir spá fyrir Ísland annó 2015 kom m.a. á skjáinn:
• að enn væri verið að ræða við Englendinga og Hollendinga um Icesave,
• að lánshæfismat Íslands og íslenskra banka kæmist ekki neðar,
• að engin lán til endurfjármögnunar lána fengjust,
• að fólksfjöldi væri kominn niður fyrir 300.000,
• að hlutfall bótaþega væri um 40%,
• að lausar íbúðir væru að nálgast 30.000,
• að enginn þörf væri fyrir nýbyggingar næstu 50 árin í það minnsta,
• að hætt væri að fresta skýrslu rannsóknarnefndar því öll mál hennar væru fyrnd.
Tölvu-völvan hefur einnig forrit sem leitar að hliðstæðum í sögunni. Þar benti hún á að álíka staða hefði komið upp í fjárkláðanum síðari um 1857. Íslendingar rifust um aðgerðir (lækna, skera) um árabil eða þangað til að féð var komið að fótum fram."
Blogg
Í DJÚPUM SKÍT ÁRIÐ 2015!
17:19 › 27. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
