ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

HIÐ ALGERA ÁBYRGÐARLEYSI

10:33 › 26. febrúar 2010

Forsetans bíður niðurlægjandi þjóðaratkvæðagreiðsla.


Framvindan í Icesave deilunni er fullkomlega á ábyrgð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar, stjórnarandstöðunnar með öðrum orðum.


Sjálfur hef ég rætt við þingmann Framsóknarflokksins sem sagði við mig í vikunni, að íslenska þjóðin hefði allt árið og jafnvel það næsta til að semja um Icesave. Ekkert lægi á.


Ég veit ekki hvort forysta ASÍ er sammála skemmdaverkamönnum í röðum þingflokks Framsóknarflokksins.
Ég er ekki viss um að Samtök atvinnulífsins séu reiðubúin til að kyngja framsóknarþjóðrembunni.


Það er auðvelt að sýna fram á að tjón íslenska þjóðfélagsins er löngu orðið meira vegna skemmdaverkastarfsemi Sigmundar og Bjarna heldur en sá ávinningur sem fæst með því að rugla eitthvað með ríkisábyrgð á hluta láns, eitt ár vaxtalaust til eða frá í síendurteknum samningaviðræðum.


Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa nú dregið þjóð sína fram á hengiflug forheimskunnar.
Flokkunum er skítsama um þjóð sína og ætla að láta hana taka þátt í fávitalegustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem um getur á norðuhveli jarðar.


Þetta segi ég vegna þess að nú þegar liggur fyrir tilboð um betri samning.


Hvers vegna ætti ég að láta draga mig á kjörstað? Til að Bjarga Ólafi forseta Indefence, besta vini Bjarna og Sigmundar?


Ég bið kjósendur sem nenna að lesa þetta: 
Hugsið um það hvað tekur við eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem úreltur samningur verður felldur.
Framvindan í málinu skrifast algerlega á reikning Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks,  einkum þess síðarnefnda, sem enginn veit frá degi til dags hvaða stefnu tekur. Sennilega skildi Sigmundur ekki neitt á fundinum með Hollenskum og Breskum ráðherrum í Haag 29. janúar síðastliðinn.


Því fleiri steina sem tekst að leggja í götu ríkisstjórnarinnar því breiðara verður flokksglottið framan í Sigmundi og Bjarna.  Í bakherbergjum brostu þeir allan hringinn þegar þeim tókst að fá bresku lögmannsstofuna Mishcon de Reya í lið með sér fyrir áramótin og senda svo Steingrími J. 25 milljóna króna reikning fyrir skemmdarverkin.


Ábyrgðarleysi þeirra kristallast í því að þeir skemma fyrir öðrum en vilja ekki axla ábyrgð sjálfir.
Hafa þeir beðið um að taka við stjórnartaumunum í landinu?
Nei.
Hefur þjóðin beðið Sjálfstæðisflokkinn um að taka við stjórnartaumunum?
Nei.
Vill Sjálfstæðisflokkurinn taka við stjórnartaumunum?
Nei.


Hann þarf þess ekki.  Bláeyg hefur ríkisstjórnin neyðst til að ráða nánast allan lögfræðingaskara Sjálfstæðisflokksins til að stjórna landinu. Þeir ráða endurúthlutun hrungóssins í gegn um afskriftir og niðurfellingar skulda.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur yfirtökin í helstu fjölmiðlum landsmanna hvað svo sem hver segir.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur enga siðbót á sinni stefnuskrá. Þeir rifu eigin endurreisnarskýrslu í tætlur á landsfundi sínum í fyrra.
Þeir verða viti sínu fjær þegar þeir sjá aðfinnslur ESB um spillingu og flokksbundið dómskerfi hér á landi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf stjórnað landinu með því að halda sannlíki (disinformation) að kjósendum. Það gera þeir enn, nú í krafti þess að ríkisstjórnin hefur ekki þrek til að verjast.


Bjarni og Sigmundur hafa engan áhuga á almennum mannréttindum og heilbrigðu réttarkerfi.
Þeir hafa ekki einu sinni áhuga á að stjórna landinu.

Þeir hafa aðeins áhuga á að leggja stein í götu Steingríms og Jóhönnu.


Þetta er hið fullkomna ábyrgðarleysi.



 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?