Það getur vel verið að Árni Johnsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins eigi íslenska dómskerfinu eitthvað grátt að gjalda.
En er ekki fullmikið að hella sér yfir Evrópusambandið þegar það samþykkir aðildarumsókn Íslands og bendir kurteislega á að Ísland sé í grárri forneskju með klíkuval á dómurum?
Árni sagði eftirfarandi á þingi í gær:
„Evrópusambandið er sýndarmennska og hégómi. Það er nútíma Sovét, ennþá verra en gamla Sovét vegna þess að flækjufæturnir eru miklu fleiri. Klíkuskapurinn ennþá meiri... Við fórum í þennan feril, láta skoða þetta. Við skulum láta það ganga yfir, þessa úttekt, en það er til skammar að stjórnvöld séu að laga íslenska stjórnkerfið að kerfi Evrópusambandsins þegar ekkert liggur fyrir um neina hluti. Það er bara til skammar. Og það er valdbeiting. Það er valdníðsla. Og það er ljóst að það er ekki þingmeirihluti, og það er ekki þjóðarvilji fyrir inngöngu í Evrópusambandið."
Fyrirgefðu Árni. Hefði okkur ekki verið nær að taka meira mark á nágrönnum okkar en við höfum gert? Er það ekki einmitt þessi hofmóður og þjóðernisgorgeir sem er helsta þjóðarmein okkar?
Við töldum okkur betri, sterkari, gáfaðri og fallegri og klárari en aðrir og aðfinnslur annarra væru bara öfund undirmálsnágranna.
Svo fór sem fór.
Hvað er hægt að gera við menn eins og Árna?
Kannski vill hann taka sæti í óíslensku nefndinni.
Blogg
"SÝNDARMENNSKA OG HÉGÓMI"
19:25 › 25. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
