ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

NIÐURLÆGJANDI ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA

13:30 › 25. febrúar 2010

Vigdís Hauksdóttir, Framsóknarflokki,  heimtaði  á Alþingi í morgun, að stjórnvöld stæðu ekki í vegi fyrir stjórnarskrárvörðum rétti kjósenda til að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesavelögin frá 30. desember. Hún fagnaði því ákaft þegar Ragna Árnadóttir mannréttindaráðherra upplýsti að  búið væri að prenta kjörseðla og dreifing þeirra stæði fyrir dyrum. Spurningin yrði auglýst í fjölmiðlum á laugardag og svo framvegis. Þjóðaratkvæðagreiðslan á enda að fara fram eftir 9 daga.

Já, Vigdís óskaði öllum til hamingju með að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram.
Hafði hún haft einhverjar efasemdir um það? Átti sá efi kannski rætur í viðbrögðum formanna stjórnarandtöðuflokkanna við málskoti forseta Íslands í byrjun janúar? Hvað eru þeir búnir að fara marga hringi í málinu?
Ég get sagt Vigdísi að ég þekki aðeins einn sem ætlar á kjörstað.  Öðrum þykir ástæðulaust að láta forsetann, Vigdísi og Indefence hafa sig að fífli.

Sannleikurinn er sá að þessi fyrsta þjóðaratkvæðagreiðsla í sögu lýðveldisins stefnir í að verða einhver mesta niðurlæging forsetans sem um getur. Því hlýtur hann að hafa fagnað mjög þegar hann heyrði Vigdísi heimta að samningaviðræðum og yfirleitt öllu yrði frestað til þess að þjóðin fengi að segja sitt NEI. Fresta líka samningaviðræðum við Breta og Hollendinga?

Fyrirgefðu Vigdís. Það hefði vitanlega átt að bera Uppkastið, sambandslögin við Dani frá 1908, undir þjóðina. Það var aldrei gert.

Viltu ekki mæla fyrir því þarna á þingi að það verði gert núna í leiðinni?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?