ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ÓÍSLENSKA NEFNDIN

17:15 › 24. febrúar 2010

Óameríska nefndin var um miðbik síðustu aldar og fram til ársins 1975 vopn öfgafullra Bandaríkjamanna gegn svokölluðum óvinum ríkisins. Öldungadeilarþingmaðurinn Jospeh McCarthy og skoðanabræður hans náðu tökum á þessari nefnd sem í fyrstu var ætlað að leita uppi meinta nasista og notuðu hana í krossferð gegn kommúnistum. Ofsóknir á vegum Óamerísku nefndarinnar gegn vinstrimönnum beindist ekki síst að listamönnum, kvikmyndagerðarmönnum, ýmsum menntamönnum og forystumönnum í verkalýðshreyfingunni. Leyniskýrslur Óamerísku nefndarinnar eru einskonar STASI-skjalasafn. Barátta áhangenda McCarthy's og Óamerísku nefndarinnar lagði líf þúsunda í rúst og skildi eftir sig djúp sár, enda var með skipulögðum ofsóknum leitast við að útiloka kommúnista frá helstu sviðum þjóðlífsins.

Nú virðist vera búið að stofna Óíslensku nefndina.
Til er hópur manna innan stjórnmálastéttarinar sem tekið hefur að sér að skilgreina fyrir fjöldanum hvað sé íslenskt og hvað óíslenskt.
Merkin eru óræk.  Hagfræðingurinn, Ann Sibert, sem sæti á í peningastefnunefnd Seðlabankans, ritaði grein þar um meðal annars að Íslendingar gætu vel staðið undir Icesave-skuldbindingunum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins heimtaði opinberlega að hún yrði rekin úr starfi.
Hann er hér með titlaður formaður Óíslensku nefndarinnar.

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fjargviðrast yfir launagreiðslum til Sibert frá Seðlabankanum. „Galið“ að greiða fólki laun fyrir að berjast gegn íslenskum hagsmunum, segir Guðlaugur.
Guðlaugur Þór er hér með titlaður varaformaður Óíslensku nefnarinnar.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er nær daglega með það á vörunum að þeir sem gagnrýni málflutning hans og Sigmundar og tali máli stjórnarflokkanna séu óvinir ríkisins.
Bjarni er hér með titlaður ritari Óíslensku nefndarinnar.
Málgagn Óíslensku nefndarinnar er í Hádegismóum og ritstjóri þess heitir Davíð Oddsson.
Hann er hér tiltlaður gjaldkeri Óíslensku nefndarinnar.
Sérlegur upplýsingamiðill og útsendari Óíslensku nefndarinnar er vefmiðilinn AMX. Hann ber kennsl á þá sem berjast gegn íslenskum hagsmunum og stimplar þá landráðamenn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?