ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

UM AFSÖKUN OG DRENGLYNDI

16:40 › 23. febrúar 2010

Allt orkar tvímælis þá gert er.

Fyrsta grein siðareglna Blaðamannafélags Íslands er svohljóðandi:

.Blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit almennings á starfi blaðamanns eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga.


Hvað svo sem um þessa reglu má segja í heild sinni skipta einstök efnisatriði hennar talsverðu máli.
Ekki síst þetta: „Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga.“


Í þessu bloggi mínu í dag birti ég mynd af Sölva Tryggvasyni blaðamanni og starfsbróður og finn að því við hann að geta ekki umfjöllunar DV um Milestone sem reist var á yfirheyrslugögnum yfir Wernerssonum og öðrum yfirmönnum félagsins fyrir nokkrum vikum.


Orðalag mitt í garð Sölva er ekki drengilegt í anda ofangreindrar reglu.


Ég vil endilega hafa þessa reglu í heiðri enda hef ég fulla ástæðu til; sjálfur hef ég mátt sæta ódrengskap af hálfu stéttarbræðra.


Af þessum sökum bið ég Sölva Tryggvason afsökunar á orðavali mínu í umræddu bloggi.
Ekki var ætlan mín að gera Sölva að miðpunkti umfjöllunarinnar með því að birta mynd af honum en ekki öðrum sem við sögu koma. Sú myndbirting var nánast spurning um að varpa hlutkesti.


„Breyttu þannig að þú getir viljað að regla breytni þinnar verði að almennu lögmáli,“ sagði Immanuel Kant.
Verðugt er að fylgja boðorði heimspekingsins fræga.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?