Ég man þá tíð þegar var fréttamaður á RÚV og helsti keppinautarnir voru Mogginn og Stöð 2 / Bylgjan.
Mogginn hafði þann háttinn á að ef RÚV „skúbbaði“ leið oft heil vika, jafnvel tvær, áður en Mogginn sló sama máli upp. Þá gerði hann það gjarnan á eigin forsendum og án þess að geta þess að fréttastofa RÚV hefði áður fjallað um málið.
Þetta ber vott um óvenjulega hallærislega vanmetakennd og harðlífi sem þrífst innan íslenskra fjölmiðla. Einhver innbyggður óheiðarleiki og lítilmennska.
Mér datt þetta í hug þegar ég horfði að hluta til á umfjöllun um yfirheyrslur yfir Wernerssonum í Kastljósinu í gær. Þetta var sem uppsláttur.
Staðreyndin er sú að DV tók málið upp fyrir nokkrum vikum á grundvelli sömu yfirheyrslugagna yfir Milestonemönnum. Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður, sem situr hér við hlið mér, hefur vakinn og sofinn matreitt málið í þúsundum dálksentímetra og rakið „Vafningstengsl“ með grafískum hætti.
Þessa var nánast í engu getið hjá Kastljósi RÚV í gærkvöldi.
Ekki þar fyrir að umfjöllun Kastljóssins var ágæt og fagmannleg. - En þetta gamla Moggaharðlífi er óþarfi.
Svo sé ég nú að Sölvi Tryggvason Pressupenni er á leið upp stjörnuhimininn að skreyta sig með sömu fjöðrum.
Það er eitthvað kauðskt og lítilmótlegt við íslenska blaðamannastétt að þessu leyti.
Látum alla njóta sannmælis og reynum að temja okkur meiri heilindi og betra siðferði að þessu leyti innan stéttarinnar. Keppum frekar á grundvelli gæða og dýptar.
Blogg
ÓVENJU HALLÆRISLEGT
11:31 › 23. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
