Er Bjarni Benediktsson vinstrimaður í augum þeirra?
Sjálfstæðir Evrópusinnar, (dyggir sjálfstæðismenn að sjálfsögðu), stofnuðu þrýstihóp á dögunum sem beitir sér fyrir aðild að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar eða í það minnsta að íhuga í fullri alvöru hvort vér eyjaskeggjar getum áfram búið við óstöðugleika og áhættu þá sem stafar af krónunni.
Við þetta fékk heimastjórnararmur Sjálfstæðisflokksins, náhirðin og Hádegismóri, kast og boða nú stofnun Samtaka hægrimanna í næsta mánuði.
Þeir ætla að hefja til vegs hugmyndafræðina sem birtist Íslendingum nú sem rústir hrunins fjármálakerfis. Á vefnum AMX kalla þeir þetta samtök gegn linum þingflokki Sjálfstæðisflokksins sem sýni enga almennilega stjórnarandstöðu. Já varaformaður flokksins hafi setið stofnfund Sjálfstæðra Evrópusinna. Svei því, segir hljómsveitarstjóri hægriþjóðernisaflanna í Hádegismóum.
Það verður fróðlegt að sjá hvort helmingur forystumanna í þessum hópi stofnenda Samtaka hægrimanna verði á sakamannabekk vegna ábyrgðar á hruni íslenska fjármálakerfisins þegar stofnfundurinn verður haldinn í næsta mánuði.
Stofnskráin er áreiðanlega klár: Enga aðild að Evrópusambandinu, styrkjum núverandi gjafakvótakerfi, eflum séreignarréttinn, semjum ekki við glæpamenn í Bretlandi og Hollandi, vígbúumst og hverfum ofan í skotgrafirnar og látum helvítis Norðurlöndin og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn súpa hel. Ein þjóð, einn leiðtogi...
Hannes Hólmsteinn mætir á fundinn og segir frá umfangsmestu og best heppnuðu frjálshyggjutilraun veraldar sem fram fór á Íslandi á tíunda áratugnum. Rétt eins og hann gerði í Wall Street Journal forðum. Hvernig Jón Ásgeir, Ólafur Ragnar og Baugsmiðlar grófu undan fyrirmyndarríkinu sem Davíð leiðtogi hafði loks komið á fót árið 2004.
Enda fór allt til andskotans eftir að Foringinn (Der Führer) neyddist til að stíga til hliðar. Tók varla nema 3 ár segir Hólmsteinn, ástmögur Háskóla Íslands.
En verið viss: Þessi nýju samtök verða aldrei til í næsta mánuði. Allt er þetta spuni sem felur í sér hótanir gagnvart Þorgerði Katrínu og Bjarna Ben. ef þau dirfast að gefa upp á bátinn sérhagsmunastefnuna, frjálshyggjuna og innmúraða klíkuþjóðfélagið sem hóf Hádegismóra til æðstu metorða í 20 ár.
Og féll með meira braki en dæmi eru um á norðurhveli jarðar í heila öld.
Er það virkilega svo að 30 prósent kjósenda í okkar litla landi haldi enn með þessu liði?
Á hvaða ferðalagi eru þeir?
Blogg
HÓTA STOFNUN SAMTAKA HÆGRIMANNA
00:23 › 23. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
