ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ICESAVE VERÐUR FACESAVE

10:01 › 22. febrúar 2010

Icesave er nú notað sem „Facesave“ til að bjarga andliti forsetans, Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben.
Í nýju samninganefndinni tala fulltrúar Sigmundar eins og Icesave séu einkaskuldir manna út í bæ og þjóðinni óviðkomandi. „Þið Bretar og Hollendingar: Viljið þið ekki bara hirða þrotabú Landsbankans og tala svo við okkur eftir 6 ár ef eitthvað stendur út af?“
Sigmundur Davíð, sem æ færri styðja innan Framsóknarflokksins, leikur sólóleik gegn þjóðinni og þarf nú að nota síðustu dreggjarnar af Icesave til að fá sér Facesave (bjarga andlitinu).
Hann hlustar ekki og skilur ekki. Sennilega væri honum hollt að hlusta á raddir eins og Guðmundar Setingrímssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Hann sagði í pistli sínum síðast um helgina:
 
„Icesavemálið er í sjálfu sér einfalt: Eignir (sem vaxa) koma upp í skuldir.  Málið dautt. Vaxtareikningur á hendur íslenska ríkinu, upp á hundruði milljarða, er stílbrot á þessum einfaldleika. Þar liggur ósanngirnin.
Ef hægt er að ná umtalsvert niður vöxtunum á Icesaveláninu, eða búa þannig um hnútana að Bretar og Hollendingar fái eignir Landsbankans upp í sitt lán – og ef eitthvað stendur út af borðinu má hugsanlega semja um meðferð þeirrar upphæðar síðar – ætti málið að vera leyst.“

Veit Sigmundur Davíð um óánægjuna sem kraumar í Framsóknarflokknum? Ég efast um það vegna þess að hann hirðir ekkert um flokkinn.
Nú bjóðast umtalsvert lægri vaxtakjör í Icesave, svo mjög að ábyrgðarleysi væri að taka ekki tilboðið alvarlega. Fíflska Sigmundar  er hins vegar slík að hann hengir sig nú í form skuldbindinganna. Enginn veit hvað hann á við.
Glámskyggni hans og ábyrðarleysi er  víðtækt og yfirgripsmikið. Hann undirgekkst að greiddar skyldu lágmarksinnstæður, að unnið yrði fljótt og vel, að flokkarnir kæmu samhentir að lausn málsins og hlustaði auk þess á hollenskan og breskan ráðherra færa fram hugmynd um lækkun lánskjara. Allt gerðist þetta á fundi 29. janúar í Haag sem hann sjálfur sat.
Skildi hann efni fundarins?
Sigmundur Davíð er eins máls maður. Hann er tengdur InDefence, kampavínsklúbbi miðaldra Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna. Frá því hann varð formaður Framsóknarflokksins hefur hann aðeins haft eitt mál á dagskrá,Icesave,  rétt eins og heili hans rúmi ekki fleiri en eitt mál í einu.
Þegar Icesavemálinu lýkur gufar Sigmundur Davíð upp.
Af hverju er þessum ábyrgðarlausa fauta ekki skipt út fyrir til dæmis Guðmund Steingrímsson sem fyrir löngu hefur séð kjarna málsins? Af hverju leyfir stórsködduð stjórnmálastéttin slíkum manni að draga úr sér enn fleiri tennur, gera sig enn ófærari um að leysa brýn hagsmunamál þjóðarinnar?
Af hverju leyfir Guðmundur Steingrímsson og aðrir á hans línu innan Framsóknarflokksins Sigmundi Davíð að nota Icesave sem Facesave fyrir sig?
Er ekki Icesave einnig Facesave fyrir Bjarna Ben.?
Er Icesave orðið að Facesave fyrir forsetann?


Hverjir ætla að bjarga andliti þjóðarinnar?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?