Hreinn Loftsson og Hannes Hólmstein Gissurarson eru komnir í hár saman.
Við hin fygjumst forvitin með því hvernig lokinu er lyft af gömlum og nýlegum málum.
Það er ekki endilega efni sem ég staldra við heldur vinnubrögðin sem eðileg þóttu og þykja enn í þjóðfélagslegum köngulóarvef Sjálfstæðisflokksins.
Reyndar sagði Hrein skilið við Sjálfstæðisflokkinn á sínum tíma með þeim orðum efnislega, að undir Davíð Oddssyni ríkti ógnarstjórn hér á landi.
Nú hefur Stefán Ólafsson dregist inn í stríðið. Ég man vel hatursherferðina gegn Stefáni sem náði inn á Alþingi er hann barðist við ofureflið sem skilgreindi veruleikann fyrir íslenska þjóð. Hann hélt því fram að misskipting hefði aukist til muna og skattaálögur væru ranglátar.
Sá veruleiki er nú hruninn og Hannes Hólmsteinn kemur fyrir sem trúður innan háskólasamfélagsins, dæmdur ritníðingur sem fleytt var inn í háskólann af flokksbræðrum vegna skoðana sinna en ekki vegna vísindaverka.
Eftirfarandi samantekt er að finna á Pressunni.is þar sem slagur Hreins og Hannesar fer fram; fyrst er vitnað til orða Hreins Loftssonar en síðar til Stefáns Ólafssonar.
„Því er rétt að upplýsa, að þar var Gróa á Leiti að störfum. Hannes fór þess á leit við mig á grundvelli fornrar vináttu, að ég ritaði rektor Háskóla Íslands bréf til að koma höggi á samkennara hans, Stefán Ólafsson.“
Stefán segir í samtali við Pressuna að þetta komi sér ekki á óvart, þótt hann hafi ekki heyrt af því að Hreinn Loftsson hafi verið beðinn um þennan greiða.
„Ég varð þó var við nokkur tilvik á þesum tíma þar sem Hannes Hólmsteinn beitti sér á þennan hátt. Hann tilkynnti mér það sjálfur að hann ætlaði í herferð gegn mér um það leyti sem ég fjallaði um skattaþróun og ójöfnuð í samfélaginu. Honnum fannst það varpa skugga á arfleifð Davíðs Oddssonar. Ég veit líka til þess að hann hafi beitt öðrum í þessari herferð. Hann sendi til að mynda menn á fund rektors til að beita sér gegn mér þar.“
Sjálfur segist Stefán ekki þekkja til Hreins Loftssonar.
Er ekki mál að við áhugasamir lesendur fáum að sjá tölvupóstana sjálfa sem sannleikur Hannesar hvílir á?
Einkar athyglisvert er hversu slepjulega prófessor Hannes Hólmsteinn mærir vinnufélaga sína í félagsvísindadeild í pistli sínum á Pressunni. Geðþóttinn, hræsnin og hentistefnan er víðtæk og yfirgripsmikil.
Tökum eftir þessum orðum Hannesar (aftur er vitnað til Pressunnar):
„Um þetta voru tölvuskeytin, sem fóru okkur Hreini í milli sumarið 2008. Hreinn sagðist í skeyti til mín vera sammála mér um Stefán Ólafsson, en engum væri greiði gerður með því að halda málinu áfram.
Ég komst á sömu skoðun, þegar ég hugsaði málið. Það var ekki af neinni sérstakri tillitssemi við Stefán, heldur við mína ágætu samkennara í félagsvísindadeild, sem hafa reynst mér vel í blíðu og stríðu og ég tel langflesta góða vini mína. Ég vildi ekki koma þeim í uppnám, og sumir þeirra voru og eru vinveittir Stefáni. Ég er á skemmtilegum vinnustað og vil engu um það breyta. Málið snerti mig líka aðeins óbeint. Þess vegna aðhafðist ég ekkert frekar.“
Ég klökkna.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
