ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

TVEIR FRAMSÓKNARFLOKKAR EÐA FLEIRI?

23:47 › 20. febrúar 2010

Ég las eftirfarandi pistil um Icesave-stöðuna eftir Guðmund Steingrímsson þingmann Framsóknarflokksins á Pressunni.is. Ég ætla strax að taka fram að ég er jafn sammála Guðmundi þingmanni Framsóknarflokksins og ég er ósammála Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þingmanni Framsóknarflokksins.
Eru þeir örugglega samherjar?
Og hvað hefur eiginlega komið fyrir Ólaf Arnarsson pistlahöfund á Pressunni? Velur hann að trúa ruglinu í Agnesi, Sigmundi Davíð og Bjarna Ben. sem hafa tekið sér einkaleyfi á því hvað séu íslensk viðhorf og hvað séu andíslensk viðhorf?
Allir hafa í orði samþykkt að greiddar skuli lágmarksinnstæður samkvæmt regluverki EES-samningsins, 20.887 evrur á hvern reikning.  Það eru um það bil 700 milljarðar. Nú ættu að vera um 630 milljarðar til upp í þessa skuld í búi Landsbankans. Leyfist mér að spyrja Ólaf sem ég veit að þekkir til bankastarfsemi: Er hægt að gangast inn á að þetta verði greitt án þess að ábyrgjast að upphæðin verði greidd?
Er nokkuð annað eftir en að skoða ný tilboð um bætt vaxtakjör?
Hefur Ólafur nokkuð látið mennina, sem sífellt eru að setja tréklossana sína í tannhjól íslenska samfélagins, teyma sig út í fúafen?


En hér er sem sagt pistill Guðmundar þingmanns Framsóknarflokksins:


Þegar Landsbankinn féll stóð upp úr öðrum hverjum manni að Icesave-reikningarnir yrðu ekkert mál. Eignir bankans myndu dekka þá.


Í því mati gerði enginn ráð fyrir að Bretar og Hollendingar myndu lána Íslendingum fyrir lágmarkstryggingunni. Enginn gerði ráð fyrir vaxtakostnaði af láni til þess arna.


Þar liggur hundurinn grafinn og hefur alltaf legið. Icesavemálið er í sjálfu sér einfalt: Eignir (sem vaxa) koma upp í skuldir.  Málið dautt.


Vaxtareikningur á hendur íslenska ríkinu , upp á hundruði milljarða, er stílbrot á þessum einfaldleika. Þar liggur ósanngirnin.


Ef hægt er að ná umtalsvert niður vöxtunum á Icesaveláninu, eða búa þannig um hnútana að Bretar og Hollendingar fái eignir Landsbankans upp í sitt lán – og ef eitthvað stendur út af borðinu má hugsanlega semja um meðferð þeirrar upphæðar síðar – ætti málið að vera leyst.


Svona í grófum dráttum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?