ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

"GRUNUR UM LEYNIMAKK"

15:08 › 20. febrúar 2010

Ljóstíra stjörnublaðakonnunnar  Agnesar Bragadóttur skín ekki mjög skært þessa dagana.
Hún skrifar á forsíðu Moggans í dag um meint baktjaldamakk fjármálaráðherra með Bretum. Fyrirsögnin er “Grunur um leynimakk – Stjórnarandstaðan full tortryggni í garð stjórnarinnar...”.
Forvitnilegt er að fá fyrirsögn um leynimakk ofan úr Hádegismóum. Halda mætti að Steingrímur J. Sigfússon og Indriði H. Þorláksson horfi yfir öxlina á Alasdair Darling, fjármálaráðherra Breta, andi ofan í hálsmál samningamanna hans og segi þeim hvað þeir eigi að bjóða Íslendingum.

Er þetta trúlegt? Er þessi grunsemdaleynimakksfrétt boðleg?
En svokallaður fréttaflutningur Morgunblaðsins á sér skýringar og forsögu. Blaðinu ritstýrir nú meintur brotamaður sem fæst við það að lesa bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis og smíða andmæli. Lítið hefur farið fyrir því aðdráttarafli Davíðs Oddssonar sem Óskar Magnússon lofaði landsmönnum þegar hann réði rekna seðlabankastjórann síðastliðið haust sem ritstjóra. Ný lesendakönnun staðfestir fréttir DV um fjórðungs fall áskrifta og lesturs.

“Grunur um leynimakk” er nýja fréttalínan sem á nú að hífa upp lesturinn og söluna.
Agnes, sem tírir ekki lengur nægilega til að lesbjart teljist, vann einnig undir Styrmi Gunnarssyni ritstjóra.
Styrmir var sannarlega staðinn að leynimakki á kontór Moggans með Kjartani Gunnarssyni þá framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins við að leggja á ráðin um Baugsmálið. Þar komu blautir Jónínupóstarnir við sögu haustið 2005. Styrmir var og er vel kunnugur leynimakki og notaði sjálfur orðin innvígður og innmúraður um leynimakkið í launhelgum Sjálfstæðisflokksins þegar ráða þurfti ráðum um óvini Davíðs og  Flokksins. Þar helgaði tilgangurinn meðalið rétt eins og nú þegar Morgunblaðið hefur rækilega vikið af braut heiðarlegrar blaðamennsku og rekur nú ofstækisfullan en stundum einfeldningslegan áróður gegn ríkisstjórn sem hrakti hann frá völdum í Seðlabankanum.
Já; Mogginn lætur sem sagt í veðri vaka að Steingrímur og Indriði H. stýri tilboðum Breta og Hollendinga til samninganefndarinnar.

Hverjir stýra Agnesi, Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni? Eru þau aumir leiksoppar fjölskyldna og ritstjóra sem bankahrunið afhjúpaði?
Hvernig getur nokkur maður vitað hvort forystumenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins gangi erinda sérhagsmuna eða almannahagsmuna?
Og hvað með stjörnublaðakonuna með daufu tíruna? „Agnes Bragadóttir er hætt blaðamennsku. Hefur hún verið ráðin til starfa sem fjölmiðlafulltrúi náhirðarinnar.“ Þannig hljómaði Facebook-staða lögmannsins Sveins Andra Sveinssonar einn dag snemma í apríl í fyrra. 
Engin furða að þessum fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hafi ofboðið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?