Eftirfarandi frétt er að finna á vef DV.IS:
„Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn hafa ekki enn skilað Ríkisendurskoðun reikningum fyrir árið 2008. Stjórnmálasamtök skulu árlega skila Ríkisendurskoðun reikningum sínum sem í kjölfarið skal birta útdrátt úr þeim.
Meðal þeirra upplýsinga sem þar eiga að koma fram eru nöfn allra lögaðila sem veittu flokkunum framlög til starfseminnar.
Upphaflega stóð til að birta útdráttinn síðastliðið haust en ekki varð af því þar sem reikningar flokkanna bárust ekki fyrr en undir árslok og sumir ekki fyrr en í byrjun þessa árs. Ríkisendurskoðun krefst þess að flokkanir skili reikningum sínum fyrir árið 2009 eigi síðar en í september næstkomandi.“
„Við höfum ekki neitt að fela í þessu og höfum aldrei haft,“
sagði Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, er hann kynnti blaðamönnum samkomulag um fjármál stjórnmálaflokkanna 22. nóvember 2006.
Samkomulagið var undirstaða nýju laganna um fjármál stjórnmálaflokkanna sem tóku gildi 1. janúar 2007, kortéri eftir að Landsbankinn og FL-Group höfðu rétt Geir H. Haarde, Kjartani Gunnarssyni og Andra Óttarssyni 55 milljónir króna samtals í flokkssjóði Sjálfstæðisflokksins.
Hefur Bjarni Benediktsson og hans fólk í Valhöll ennþá eitthvað að fela?




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
