Nú vill Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins endilega halda þjóðaratkvæðagreiðslu og mælir með því að kjósendur felli lögin sem þingið samþykkti 30. desember síðastliðinn og lýðræðiselskandi forsetinn vísaði til þjóðarinnar. Ekkert að því að vera samningslaus ef núverandi viðræður renna út í sandinn sýndist mér eftir honum haft síðast í dag.
„Ef það dugar ekki til þess að leiða fram niðurstöðu þá vil ég að við fellum þessa samninga sem voru afgreiddir í lok síðasta árs. Þá er ljóst það er ekkert samkomulag í gildi við Breta og Hollendinga. Það er ekki vegna þess að við höfum ekki sýnt sanngirni heldur vegna þess að þeir hafa verið með óbilgjarnar kröfur. Við eigum ekki að tapa ró okkar yfir því," segir Bjarni við visi.is.
Bjarni lærir greinilega aldrei neitt og virðist ólæs á íslensk stjórnmál.
Hvernig sem þjóðaratkvæðagreiðslan fer mun það gerast , að kjósendur kveða þar upp sinn endalega dóm. Með því taka kjósendur sér einnig stöðu fyrir framan Bjarna og Sigmund Davíð. Eftir slíka þjóðaratkvæðagreiðslu skiptir engu máli lengur hvað þeir segja. Þeir koma sér í þessa stöðu hjálparlaust.
Falli lögin þarf ríkisstjórnin að setja enn á ný undir sig hausinn og reyna að takmarka það tjón sem hlotist hefur af ábyrgðarleysi Bjarna, Sigmundar Davíðs, forseta Íslands, Ögmundar og InDefence.
Í DV í dag segir meðal annars:
„Ónefndur hagfræðingur hefur reiknað að herkostnaður þjóðarinnar vegna tafa á Icesave-samningum við Hollendinga og Breta nemi 75 milljörðum króna á mánuði. Þetta þykir vísum mönnum ríflegt. En jafnvel þótt deilt væri í upphæðina með 10 væri niðurstaðan 7,5 milljarðar króna á mánuði. Þetta telja menn jafnvel vera of lága tölu. Frá því samningur lá fyrir í júní í fyrra hefur þjóðarbúið því tapað að lágmarki 60 milljörðum króna. Verðbólga hefur verið á uppleið í Bretlandi og Bank of England mælir hana 3,5 prósent um þessar mundir.
Eru þá raunvextir af Icesave ekki komnir niður í 2 prósent miðað við 5,5 prósenta fasta vexti af Icesave-skuldbindingunum?“
Fyrirgefðu Bjarni: Þjóðin borgaði 32 milljarða króna í vexti og verðbætur fyrir einkaseðlabankahrun Davíðs Oddssonar á síðasta ári?
Hvenær ætlar þú að hætta að vinna þjóð þinni tjón?
Blogg
HÆTTU AÐ BAKA ÞJÓÐ ÞINNI TJÓN
15:07 › 19. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
