ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ATHYGLISVERT KASTLJÓSVIÐTAL

12:35 › 19. febrúar 2010

Í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi tókust á Helgi Seljan fréttamaður og Gylfi Magnússon efnahag- og viðskiptaráðherra.
Helgi spurði um tvennt:  Laun skilanefndamanna og slitastjórna annars vegar og um afskriftir bankanna og meðferð þeirra á útrásarvíkingum eða grunuðum hins vegar.


Þetta var vitrænt samtal; Helgi spurði jafnvel út frá siðferðilegum viðmiðunum svo sem vera ber. Almenningur skiptir sér ekki aðeins af lögum heldur einnig siðferði.


Svör Gylfa og viðbrögð hans eru eftirminnileg og að mínu viti bæði rétt og embættisleg.
Hann vakti meðal annars athygli á að íslenska ríkið bæri nokkra ábyrgð á skilanefndunum jafnvel þótt þær væru nú launaðar af kröfuhöfum. Honum þótti laun skilanefndarmanna há á íslenskan mælikvarða og benti á að ríkið væri meðal eigenda og kröfuhafa í bönkunum og gæti sagt sína meiningu um þetta.


Afstaða hans til afskrifta bankanna og meintra sakamanna hrunsins þótti mér ábyrg og einhvern veginn rétt.


Gylfi sagði að fyrirtækin yrðu að ganga hvað sem tautar og raular og þyrftu skjóta úrlausn.
Gylfi sagði að sumir útrásarvíkingar, stjórnendur eða aðaleigendur fyrirtækja og banka sættu nú rannsókn.
Gylfi benti á að réttað verði yfir sumum þeirra og einhverjir þeirra verði dæmdir.
Gylfi benti á að sumir þeirra lendi vafalaust í skattamálum og verði einnig dæmdir.
Gylfi benti á að æra sumra þessara manna væri engin og fyrirtæki sæktust varla eftir því að hafa þá í fyrirsvari.
Gylfi benti á að réttarkerfið vinni á öðrum hraða en viðskiptalífið og við yrðum að vera þolinmóð.
Gylfi vildi ekki búa til „svartan lista“ fyrir fjölmiðlana (væri slíkt ekki fasismi?)
Gylfi benti á að allir eru saklausir uns sekt er sönnuð.

Gylfi býr í réttarríki og ég er feginn því að maður eins og hann eru tilbúinn að verja það.


Það breytir ekki því að almenningur getur og má taka afstöðu til upplýsinga og hneykslast á græðgi, bruðli og siðleysi. Almenningur má taka afstöðu gegn útrásarvíkingum nú þegar.  Helgi hélt slíkum sjónarmiðum á lofti.
Ég sé að landflótta fjölmiðlakona í Noregi vill ekki skipta við Samskip hans Ólafs Ólafssonar.
Þótt Gylfi taki afstöðu með réttarríkinu gæti hann hæglega tekið sama pól í hæðina og fjölmiðlakonan í Noregi. Hann getur líkt og aðrir borgarar greitt atkvæði með buddunni.


Takk fyrir spjallið Helgi og Gylfi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?